Granada og Alhambra höllin
Í þessari frábæru heilsdagsferð til Granada skoðum við hina stórkostlegu Alhambra höll og Generalife garðana ásamt því að keyra mjög fallega leið frá Almería til Granada.
Alhambra höllin skiptist í nokkrar hallir byggðar á 11 - 15 öld.
Alhambra er ásamt Prado safninu í Madrid mest sóttu ferðamannastaðir á Spáni.
Við skoðum hallirnar og garðana sem tekur um tvo og hálfan tíma. Eftir það förum við í miðbæ Granada og stoppum þar í 2 tíma. Þar hægt að fá sér eitthvað að borða á hinum fjölmörgu veitingarhúsum eða rölta um bæinn og skoða í verslanir ásamt því að njóta mannlífsins sem er á götum borgarinnar.
Ferðin okkar hefst um kl. 08:00 í Roquetas de Mar eftir að búið er að sækja í Roquetas de Mar komum við í El Toyo og sækjum farþega þar um kl. 08:30 – 08:45 komum til baka upp úr kl. 20:00
Mini Hollywood / Oasys
Bjóðum upp á stutta og skemmtilega ferð í kúrekaþorp og dýragarð. Keyrð er falleg leið frá Almería í átt að Granada. Aksturinn tekur um klukkutíma.
Þegar á staðin er komið þá getum við farið á sýningar eins og Cancan danssýningu, kúrekasýningu og páfagaukasýningu. Þessi ferð er fyrir alla aldurshópa.
Kúrekaþorpið er lítið en mjög fallegt, dýragarðurinn er stór og með fullt af dýrum. Þar má nefna fíla, týgrisdýr, gíraffa, úlfalda, nashyrninga ofl. Í þessu kúrekaþorpi voru margir frægir vestrar teknir upp og einnig líka myndin Indiana Jones sem gerð var 1989.
Einnig er hægt að fara í sund ( sundlaug og vatnsrennibraut ).
Ferðin okkar hefst um kl. 08:00 í Roquetas de Mar eftir að búið er að sækja í Roquetas de Mar komum v87ið í El Toyo og sækjum farþega þar um kl. 08:30 – 08:45 komum til baka upp úr kl. 14:00
Dómkirkjan Santa Ana, Alcazan kastalinn og neðanjarðarbyrgi.
Almería er fallegur bær með um 190.000 íbúum.
Ferðin okkar byrjar á því að við skoðum dómkirkuna Santa Ana sem er er frá 15 öld. Síðan liggur leið okkur í Alcazaba kastalann.
Þessi kastali er frá 9 og 10 öld og svo hluti frá 15 og 16 öld.
Það þarf að ganga upp brekku til að komast að þessum kastala.
Eftir að við höfum fræðst um Alcazaba þá liggur leið okkur í neðanjarðarbyrgi sem eru frá borgarastríðinu á Spáni. Þessi byrgi voru byggð í byrjun árs 1937 og þangað flúðu íbúar Almería þegar sprengjum ringdi yfir borgina.
Einnig höfum við smá tíma frjálsann til þess að fá okkur hressingu eða ganga um svæðið. Mælum með að fólk taki með sér vatnsflösku í þessa ferð og vera í góðum skóm.
Ferðin okkar hefst um kl. 09:00 í Roquetas de Mar eftir að búið er að sækja í Roquetas de Mar komum við í El Toyo og sækjum farþega þar um kl. 09:30 – 09:45 komum til baka upp úr kl. 14:00
Mojácar
Markaður og rölt um bæinn
Mojácar er týpist Andalúsíkst þorp sem hefur að geyma arabíska menningu. Þetta litla einstaklega fallega þorp veitir sýn inn í arfleið svæðisins. Sérstakt byggingarform á húsum í Mojácar
vekur athygli þar sem þau hanga í brattri hlíðinni.
Gaman er að ganga um þröngar götur í
Mojácar og njóta fallegs útsýnis yfir dalinn og út á sjó.
Einnig er kirkja og ráðhús á þorpstorginu, verslanir og veitingastaðir.
Ferðin okkar hefst um kl. 09:00 í Roquetas de Mar eftir að búið er að sækja í Roquetas de Mar komum við í El Toyo og sækjum farþega þar um kl. 09:30 – 09:45 komum til baka upp úr kl. 15:00