Benidorm og Albir
Líf og fjör fyrir alla fjölskylduna
Benidorm
Benidorm sameinar notalegt strandlíf og fjörugt næturlíf. Fólk flykkist þangað til að njóta tilverunnar, hvílast og skemmta sér. Þar mætast ungir sem aldnir í sátt og samlyndi og allir finna dægradvöl við sitt hæfi. Á Benidorm eru endalausir valkostir fyrir alla fjölskylduna.
Á aðra hönd kyssir Miðjarðarhafið sólhvítar sandstrendur, á hina rís fjallahringur sem lumar á yndislegum þorpum og óviðjafnanlegum ævintýrum. Skemmtigarðar, náttúruperlur, nýfangað lostæti úr sjónum og auðvitað fjörið á hinum ótal krám og dansstöðum staðarins.
Þeir sem koma til Benidorm skilja af hverju staðurinn er einn vinsælasti sumarleyfisstaður Evrópu, þar er allt sem hugurinn girnist og líkaminn þarfnast.
Albir
Öll fjölskyldan tekur ástfóstri við Albir. Aðdráttarafl bæjarins er einstakt og fegurð staðarins og sólbakað andrúmsloftið heilla þá sem vilja friðsæla daga. Í vinalegum bænum er auðvelt að njóta lífsins þar sem í boði eru góð kaffihús, girnilegur matur, líflegar krár og verslanir. Það er alltaf nóg við að vera.
Steinsnar frá Albir bíður skemmtanalífið á Benidorm og hið kyrrláta athvarf listamanna, Altea, þar sem þröngar götur og magnaðir veitingastaðir seiða til sín ferðalanga í leit að sönnum, spænskum anda. Ströndin á Albir er sambland af sandi og steinvölum sem hentar vel til sólbaða og hvers konar strand- og sjávarleikja. Hér er starfræktur eini seglbrettaskólinn á svæðinu, ásamt góðum köfunarskóla.
Fólki með lítil börn er bent á að Albirströndin hentar börnunum síður en hinar sendnu og aðgrunnu Levante og Poniente strendur á Benidorm eða strendurnar í Calpe. Frá Albir er aðeins um 25 mínútna akstur inn í gamla bæinn á Benidorm. Einnig ganga strætisvagnar til Benedorm og Altea. Á sumrin slá listamenn frá Altea upp skemmtilegum markaði á ströndinni við Albir.
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Sumarferðir bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Viltu leigja bíl?
Sumarferðir hafa gert samning við bílaleiguna Centauro um hagstæð verð á bílaleigubílum.
Traust og góð bílaleiga sem er ávallt með nýjustu bílana á markaðinum.
Smelltu hér til að skoða verð og bóka bílinn þinn.
