Afþreying
Skipulögð skemmtun
Fararstjórar Sumarferða taka á móti farþegum á flugvelli, halda kynningafundi, sjá um skoðunarferðir og eru við símann í neyðartilfellum. Margt spennandi stendur til boða á Benidorm, og hér að neðan stiklum við á því helsta.
Terra Mitica
Nýr og glæsilegur fjölskyldu- og skemmtigarður. Hann er byggður í anda gömlu Miðjarðarhafsmenningarinnar og skiptist í fimm stór svæði. Þar gefast gestum ótal tækifæri til leikja og fróðleiks, eins og að versla á gömlum egypskum basar, skoða pýramída, ganga um völundarhús og fornar götur. Í garðinum er fjöldi leiktækja og glæsilegra veitingastaða og hápunkturinn fyrir þá hugrökku er svo einn stórkostlegasti rússibani Spánar. Rútuferðir frá Benidorm allan daginn.
Meira á vef Terra Mitica
Aqualandia
Fallegur og tilkomumikill vatnsskemmtigarður fyrir alla fjölskylduna. Hér ríkir sannkölluð gleðibylgja frá morgni til kvölds sem hrífur gesti með. Einfalt er að skreppa í garðinn með strætó eða með leigubíl. Frábær skemmtun!
Meira á vef Aqualandia
Mundomar
Við hliðina á Aqualandia stendur spennandi sædýrasafn sem heitir Mundomar. Gestir njóta þess að skoða dýrin í náttúrulegu umhverfi þeirra, innan um fallega göngustíga og fossa. Aðalstjörnur safnsins eru vinalegir höfrungar og sæljón sem leika ótrúlegar listir og heilla áhorfendur upp úr skónum.
Meira á vef Mundomar
Benidorm Palace
Einn glæsilegasti næturklúbbur Spánar. Frábærir skemmtikraftar, fjöllistamenn, söngvarar og dansarar töfra fram óborganleg atriði og tryggja ógleymanlegt kvöld.
Meira á vef Benidorm Palace
Köfun
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja læra köfun og fá alþjóðlegt skírteini upp á vasann. Köfunarskólinn hefur aðsetur sitt í Albir og býður upp á námskeið sem stendur í fjóra til fimm daga, þrjá til sex tíma hvern dag. Nemendur eru sóttir á hótelið og þeim ekið á staðinn og sóttir aftur að kennslu lokinni. Kennslan fer fram á ensku.
La Marina
Nýleg glæsileg verslunarmiðstöð, La Marina, er staðsett við hliðina á Carrefour (áður Continente) og þar má finna úrval góðra verslana á borð við Zara, Mango Pull and Bear, Massimo Dutti og fleiri þekkt vörumerki.
Altea
Í Altea iða kræklóttar þröngar götur bæjarins af lífi og sköpun. Mörg listasöfn prýða þennan fallega bæ og víða má finna listamenn og aðra snillinga við iðju sína eða í rólegheitunum á uppáhalds-kaffihúsinu sínu. Óvíða er að finna betri paellu, þjóðarrétt Spánverja, en á veitingastöðum bæjarins.
Calpe
Skammt norður af Benidorm rís úr hafi hár klettur, Penon de Ifach, oft nefndur "Gíbraltar norðursins". Við rætur hans kúrir eitt þekktasta fiskiþorp héraðsins, Calpe, rómað fyrir fegurð og góðan fisk. Þangað er siglt daglega og komið til Calpe um það leyti sem lífið við höfnina kviknar eftir miðdegisblundinn. Þegar trillurnar koma að landi, hlaðnar lostætu sjávarfangi, er tilvalið að tylla sér niður á veitingastað og panta ljúffenga sjávarrétti að hætti heimamanna.
Golf
Í nágrenni Alicante og Benidorm eru fjölmargir skemmtilegir golfvellir sem golfáhugamenn ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Sjá yfirlit yfir golfvellina