Benidorm

Veðrið á Costa Blanca

Vinsældirnar eru engin tilviljun

Það er engin tilviljun að austurströnd Spánar er vinsælasti sumardvalarstaður sóldýrkenda úr öllum hornum Evrópu. Veðrið er frábært yfir sumarmánuðina með júlí og ágúst sem heitustu mánuði en sól og blíðu frá maí og fram í október.

Í júlí og ágúst er alltaf von á hitabylgjum með vel yfir 30 stiga hita. Þeim sem vilja forðast mestu hitana er ráðlagt að ferðast í seinni hluta maí, júní og hinum stórlega vanmetna september. Á þessum tímum má gera ráð fyrir frábæru veðri og nægri sól, en síður hinum miklu hitabylgjum. Svalandi sjór og sundlaugar, ásamt loftkælingum á flestum stöðum, tryggja þó að hitinn fer sjaldnast úr böndunum.

Fyrir hina, sem vilja sólina í hádegisstað sem allra lengst, fjör og fólk út um allt og Spánarstrendur í sínu toppformi, eru júlí og ágúst vinsælustu mánuðirnir. Þá nær ferðamannavertíðin hámarki og á fáa sína líka í Evrópu og þó víðar væri leitað.

Áfangastaðir okkar á Costa Blanca eru allir á sama veðrasvæði, frá Alicante í suðri - sem auðvelt er að fylgjast með á helstu fréttastöðvum - að Calpe, um 70 km norðar. Sumir segja að meira finnist fyrir hitanum á Benidorm en í minna þéttbýli eins og Albir og Calpe en munur á skýjafari er ekki teljandi. Á öllum þessum stöðum má búast við skýjadögum inn á milli en afar sjaldan mörgum í röð.

Powered by ODIN