Hagnýtar upplýsingar
Apótek
Heita farmacia á spænsku og eru merkt með grænum krossi. Þau eru opin alla virka daga frá kl. 9 -13 og 16:30 - 19:30. Sum eru opin allan daginn. Eitthvert apótek er á vakt yfir helgidaga og flestir leigubílstjórar vita hvaða apótek eru á vakt.
Bílaleigubílar
Fyrir milligöngu fararstjóra er hægt að leigja bílaleigubíla, íslenskt ökuskírteini, vegabréf og 21 árs aldur eru forsenda fyrir leigu á fólksbíl. Gott er að panta með fyrirfara. Við mælum með því að taka kaskótryggingu til að sleppa við sjálfsábyrgð.
Hringt heim til Íslands
Til þess að hringja heim þarf að hringja í 00 354 og svo símanúmerið heima. Ódýrast er að hringja eftir kl. 22 á kvöldin og á sunnudögum. Gætið að því að ef þið eruð með íslenskan farsíma á Spáni þá borgið þið fyrir millilandasamtal í símann frá Íslandi.
Leigubílar
Er best að panta í gestamóttökum hótelanna. Farþegar á Apolo, Sotavento og Barlovento geta farið á Hotel SH Ifach.
Loftkæling
Gæta verður varúðar þegar loftkæling er notuð. Bæði getur verið varasamt fyrir heilsuna að stilla loftkælinguna of lágt, sérstaklega á nóttunni. Of mikil loftkæling getur valdið kvefi og vanlíðan. Einnig er mikilvægt að hafa hurðir og glugga að lokaða þegar loftkæling er notuð. Annars er mikil hætta á að loftkælingin ofhitni og eyðileggist með tilheyrandi kostnaði og viðgerðartíma.
Læknar
Læknastofan sem við bendum á er við hliðina á Hotel SH Ifach þar sem enskumælandi læknar starfa, síminn hjá þeim 965 832 200. Ef læknirinn er í vitjun þá er hann með GSM númerið 608 076 934. Sjúkrahús er hinsvegar að finna á Benidorm eða Alicante.
Markaður
Í Calpe er útimarkaður á laugardögum frá kl. 9 -13 á götunni Avd. del Norte, Puerto de Santa María. Í Altea er útimarkaður á þriðjudögum (við ströndina) frá kl. 9 - 13. Á Benidorm er útimarkaður á miðvikudögum og sunnudögum frá kl. 9 - 13 í Levante bæjarhlutanum, skammt frá Hotel Levante Club.
Varist fyrir alla muni fingralanga vasaþjófa.
Póstur
Aðalpósthúsið er í gamla bænum í Calpe, ofarlega í hliðargötu frá Gabriel Míró verslunargötunni. Frímerki fást í bóka og tóbaksverslunum og heitir sellos á spænsku. Sumir gististaðir selja frímerki og taka einnig við póstkortum. Póstkassa er víða að finna en þeir eru gulir að lit á Spáni.
Skoðunarferðir
Bókað er í skoðunarferðir á kynnisfundi, í viðtalstíma og í þjónustusíma. Lágmarksfjöldi í skoðunarferðir er 20 farþegar, en einnig er hámarksfjöldi ef einungis næst til dæmis að bóka í eina rútu. Afbóka þarf með minnst sólarhringsfyrirvara, annars er skráningin bindandi og getur farþegi þurft að greiða allt að 50% af skráningargjaldi til að mæta kostnaði við bókun á rútu, en slíkar bókanir eru síður afturkræfar en bókanir í skemmtigarða.
Verslanir
Verslanir eru almennt opnar frá kl: 9:30 - 13:30 og frá 16:30 - 20:30 alla virka daga. Caprabo og Mercadona stórmarkaðir eru opnir frá kl: 10 - 21 alla daga nema sunnudaga.
Öryggishólf
Öryggishólf heita caja fuerte á spænsku og safety box á ensku. Við viljum benda farþegum okkar á að leigja öryggishólf á þeim gististöðum þar sem slíkt er í boði. Yfirleitt þarf að greiða tryggingagjald (misjafnt eftir hótelum) sem fæst endurgreitt þegar lykli er skilað og kvittun sýnd. Hafið samband við hótelafgreiðslu.
Þjórfé
Það er siður á Spáni að gefa þjórfé, ef gestir eru ánægðir með þjónustuna. Ef þið eruð ánægð með þjónustu á veitingastöðum er til siðs að gefa 5-7% í þjórfé. Herbergisþernum er ágætt að gefa 5 EUR á viku, leigubílsstjórar, rútubílstjórar og hárgreiðslufólk eru starfsstéttir sem einnig er til siðs að gefa þjórfé. Rútubílstjórum er ágætt að gefa 1 - 2 EUR fyrir heilsdagsferð.
Þjónustusími
Sumarferðir skipta við marga aðila í ferðaiðnaði hér á Spáni til þess að við getum veitt farþegum okkar sem víðtækast framboð á þjónustu. Mjög margir þessara aðila eru með lokaðar skrifstofur seinnipart laugardags og nánast allir eru með lokað á sunnudögum. Því er þjónustusíminn okkar opinn alla virka daga frá kl. 11 - 15 nema fimmtudaga en þá er opið frá klukkan 10- 12.