Golf á Tenerife á ótrúlegu verði!
Verð frá kr. 149.000.- með hálfu fæði.
Brottfarir 23. janúar 11 nætur og 03. febrúar 7 nætur
Sumarferðir býður nú upp á spennandi tilboð fyrir kylfinga til Tenerife í janúar og febrúar
Tilboð þetta kemur frá einum þekktasta golfvelli Tenerife, Las Americas sem er mörgum íslenskum kylfingum vel kunnugur enda verið einn vinsælasti golfvöllurinn á eynni.
Las Americas völlurinn er staðsettur við Las Americas ströndina og því örstutt frá, Hotel Gala og Tropical Playa, gististöðunum sem eru í boði í golfferðinni sem kemur sér einstaklega vel þar sem farþegar sjá sjálfir um daglegar ferðir milli gististaðar og golfvallar.
Las Americas golfvöllurinn er 18 holu með mikla fjölbreytni í brautum. Hann býður betri kylfingum að reyna hæfnina en er um leið hæfilega mikil áskorun fyrir kylfinga með hærri forgjöf. Sjá nánar um völlinn Las Americas Golf.
Í báðum ferðunum er boðið upp á golf í 5 daga. Verð fyrir golfbíl er 10 evrur á mann, 2 saman á bíl, almennt verð er 38 evrur. Ef það er áhugi á að leika fleirri daga þarf að hafa samband við söludeildina hjá Sumarferðum og við könnum hvort það gangi upp. Verð fyrir aukagolf er aðeins 55 evrur en almennt verð er 96 evrur.
Þeir sem hafa ekki komið til Tenerife ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum. Það er af nægu að taka til afþreyingar.
Innifalið: flug með sköttum og flutningi á golfsetti, gisting með morgun og kvöldmat, 5 golfhringir og íslensk fararstjórn. (ath. fararstjórn miðast við lágmarksþátttöku).
Sjá nánar um verð í bókunarvélinni. ATH. það kemur ekki fram í bókunarvél að það séu 5 hringir innifaldir í verði hvorrar ferðar. Einnig er hægt að sameina þessar tvær ferðir og vera þá í 18 daga samfellt með 10 golfdögum inniföldum.