Hagnýtar upplýsingar
Betra golf með allt á hreinu
Hafa samband
Ef þörf er á nánari upplýsingum má senda tölvupóst á golf@sumarferdir.is.
Bókanir
Öll verð eru miðuð við netbókanir. Ef bókað er gegnum síma eða tölvupóst leggst á bókunargjald, kr. 3.900 á farþega.
Farangur
Flutningur fyrir golfsett er innifalinn í verðum í skipulögðum hópferðum. Í flugum okkar með Iceland Express má golfsettið vikta allt að 12 kíló. Þyngd farangurstösku má vera allt að 15 kíló eða samtals í heild 27 kíló fyrir bæði.
Lágmarksfjöldi
Til að golffararstjóri verði með í ferðinni þarf lágmarksþátttaka að vera 16 manns í hverri ferð.
Golf
Ástand golfvalla
Við hjá Sumarferðum tökum ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða óviðráðanlegra aðstæðna. Hins vegar erum við stöðugt að reyna að fá upplýsingar um það hvenær framkvæmdir standa yfir á golfvöllunum (eins og að gata flatir o.s.frv.).
Ef það er fyrirséð að einhverjar framkvæmdir komi til með að hafa áhrif á ástand valla þá kynnum við það umsvifalaust hér á vefnum.
Byrjendur og háforgjafarkylfingar
Það er almenn regla í golfi um allan heim að eingöngu þeir sem eru með golfforgjöf fái að spila alvöru golfvöll. En vegna þess að hér er um hópbókun að ræða, og golfklúbbarnir hafa loforð fyrir því að hópar á okkar vegum muni ekki tefja leik, höfum við fengið undanþágu frá þessari reglu.
En þó skal hafa í huga að algerir byrjendur og þeir hafa lítið sem ekkert komið nálægt golfi eiga ekki erindi að spila á þessum völlum. Þess vegna áskilja Sumarferðir, golffararstjórar Sumarferða og golfklúbbarnir erlendis sér rétt til að meta það hvort fólk kemst á vellina eða ekki.
Rástímar
Rástímar/leikdagar eru birtir á vef okkar um þeið og þeir liggja fyrir. Við höfum reynt eins og hægt er að fá rástíma með það í huga að viðskiptavinir okkar geti spilað meira en 18 holur á dag. Þegar um hópbókanir er að ræða eiga golfvellirnir rétt á þvi að breyta rástímunum fyrirvaralaust og þess vegna bera Sumarferðir enga ábyrgð á því. Við viljum þó taka fram að slíkt er mjög fátítt.
Rásröð
Það er hlutverk fararstjórans að gera sitt besta til þess að allir fái meðspilara sem þeir eru ánægðir með.
Ef þú veist um fólk í sömu ferð sem þig langar að spila með dag og dag, eða allan tímann, þá endilega láttu okkur vita með tölvupósti á golf@sumarferdir.is.
Golf á frídögum
Þeir sem vilja panta golf á frídögum, fyrir brottför láti okkur vita golf@sumarferdir.is. Ef farþegar vilja spila aukagolf þegar komið er út, bera þeir fulla ábyrgð á að panta það sjálfir. Golffararstjórar okkar geta ekki ábyrgst að hægt verði að fá aukagolf ef menn hafa ekki pantað það fyrirfram hér heima en að sjálfsögðu munu þeir hjálpa til ef hægt er.
Golf á öðrum völlum
Sumarferðir sjá ekki um að panta rástíma á öðrum völlum en þeim sem tilheyra sjálfri ferðinni. Þeir sem hafa hug á að leika aðra velli ættu að kynna sér hvaða daga þeir hafa þegar bókaða rástíma í ferðinni og panta tímanlega héðan að heiman.
Golfbílar, kerrur og rafmagnskerrur
Villaitana
Verð fyrir golfbíla og kerrur vor 2010.
Golfbíll 18 holur 20 evrur, rafmagnskerra 12 evrur, handkerra 5 evrur.
ATH. Golfbílar eru innifaldir þegar leikið á Poniente.
Ótakmarkað golf
Golffarþegar okkar geta spilað ótakmarkað golf, sér að kostnaðarlausu alla spiladagana, en athugið þó:
- a) Það þarf að taka það fram að þú/þið séuð í Sumarferðahópnum.
b) Það þarf að sýna kvittun fyrir fyrstu 18 holunum sem spilaðar hafa verið fyrr um daginn.
- Aukagolf er ekki hægt að panta fyrirfram og fæst einungis ef laus rástími er í boði eftir fyrsta hring.
- Aukagolf þarf ekki að spila strax eftir fyrsta hring. T.d. er hægt að fara af svæðinu og koma aftur seinna sama dag. Aukagolf má vera eins margar holur og menn vilja/geta spila.
- Þrátt fyrir auglýst ótakmarkað golf bera Sumarferðir ekki ábyrgð á því að aukagolf náist ekki af einhverjum ástæðum (t.d. ef rástími fyrri hrings gefur ekki svigrúm til þess).
Golfkennsla
Hægt er að fá kennslu í öllum ferðum. Fararstjórar munu veita upplýsingar um það úti.
Því miður er ekki hægt að panta kennslu fyrir brottför.
Æfingasvæði
Á Villaitana er ágætis æfingasvæði. Slegið af grasi og vipp og púttflöt.
Golfklæðnaður
Almennt er gerð krafa um klæðaburð, t.d. er bannað er að leika golf í gallabuxum, íþróttabuxum, stuttbuxum með teygju í mittið og stuttermabolum án kraga.
Sendu fyrirspurn á golf@sumarferdir.is ef þú ert í vafa. Einnig getur flest starfsfólk golfverslana hér heima ráðlagt fólki í þessum efnum.