Heldri borgarar
Ferðalög og frábær félagsskapur fyrir 60 ára og eldri
Heldri borgaraferðir Sumarferða eru ferðir ætlaðar 60 ára og eldri. Í þessum ferðum er hópurinn samstæður og þú nýtur samvista við jafnaldra, vini og kunningja.
Skemmtanastjóri er með í ferðunum og skipuleggur fjölbreytta dægradvöl, t.d. leikfimi, spilavist og skemmtikvöld. Farið er saman út að borða, í dans og danskennslu og mínígolf ásamt fjölmörgum öðrum skemmtilegum uppákomum. Að ógleymdum frábærum skoðunarferðum í fylgd reyndra fararstjóra.
Benidorm
Benidorm sameinar notalegt strandlíf og fjörugt næturlíf. Fólk flykkist þangað til að njóta tilverunnar, hvílast og skemmta sér. Þar mætast ungir sem aldnir í sátt og samlyndi og allir finna dægradvöl við sitt hæfi. Á Benidorm eru endalausir valkostir fyrir alla fjölskylduna.
Á aðra hönd kyssir Miðjarðarhafið sólhvítar sandstrendur, á hina rís fjallahringur sem lumar á yndislegum þorpum og óviðjafnanlegum ævintýrum. Skemmtigarðar, náttúruperlur, nýfangað lostæti úr sjónum og auðvitað fjörið á hinum ótal krám og dansstöðum staðarins.
Þeir sem koma til Benidorm skilja af hverju staðurinn er einn vinsælasti ferðamannastöðum Evrópu, þar er allt sem hugurinn girnist og líkaminn þarfnast.
Gran Hotel Bali — Ferð heldri borgara
Hinar vinsælu eldri borgaraferðir á Gran Hotel Bali á Alicante svæðinu á Spáni hafa svo sannarlega slegið í gegn. Þar njóta menn samvista við jafnaldra, vini og kunningja. Skemmtanasjóri skipuleggur fjölbreytta dagskrá við allra hæfi. Hótelið er án vafa eitt allra glæsilegasta hótel á Costa Blanca ströndinni.
Verð frá:187.900 kr.
m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með hálfu fæði
Brottför:
25. sept.
Heimkoma:
16. okt.
Lestu meira um þessa spennandi ferð!
Veldu áfangastaðinn og dagsetningu í bókunarvélinni hér til hægri til að bóka þessa ferð!
Haustferð til Tenerife
Við bjóðum nú upp á skemmtilega haustferð til hinnar fögru og heillandi eyju Tenerife. Nóg er af skoðunarferðum um eyjuna og skemmtanastjóri heldur uppi fjörinu. Leikfimi, minigolf, spilakvöld og skemmtikvöld er í boði og að sjálfsögðu verður farið saman út að borða. Tropical Playa er gott 3ja stjörnu íbúðarhótel á Las Americas ströndinni. Hótelið er staðsett í rólegum hluta Troya hverfisins og er stutt í búðir og aðeins um 450 m á ströndina. Þú verður að hafa snöggar hendur því síðasta ferð var fljót að seljast upp!
Verð frá:162.345 kr.
m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð
Brottför:
6. okt.
Heimkoma:
27. okt.
Lestu meira um þennan spennandi áfangastað!
Veldu áfangastaðinn og dagsetningu í bókunarvélinni hér til hægri til að bóka þessa ferð!