Kanarí

Kanarí

Gran Canaria - hvíld, skemmtun og eintóm ánægja!

Gran Canaria er þriðja stærsta eyjan í Kanarí-eyjaklasanum og hefur um áratugaskeið verið langvinsælasti vetraráfangastaður sólþyrstra Íslendinga. Sumarferðir bjóða fjölbreytta þjónustu og gistimöguleika á Kanarí þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á verði sem spillir svo sannarlega ekki fyrir.

Það leiðist engum á Kanarí, enda mikið úrval af fjölbreyttri skemmtun fyrir alla aldurshópa. Fjölskyldur, einstaklingar og pör á öllum aldri geta fundið sér góðan stað og eitthvað skemmtilegt við að vera á Kanarí.

Iðandi næturlíf

Næturlífið iðar af fjöri og á daginn ríkir suðræn stemning. Dúndrandi tónlist á diskótekunum, róleg kaffihúsa- og barstemning og veitingastaðir sem svíkja ekki bragðlaukana. Matur og drykkur er ótrúlega ódýr á Kanaríeyjum og því um að gera að njóta lífsins. Í boði eru áhugaverðar kynnisferðir um eyjarnar, góðir golfvellir og frábær íþróttaaðstaða.

Enska ströndin

Enska ströndin er vinsælasti dvalarstaður Íslendinga. Þar er fjörugasta mannlífið, fjöldi góðra gististaða og öll þjónusta og skemmtun í göngufjarlægð. Þar er að finna stærstu verslunarmiðstöðvarnar Yumbo, Cita og Kasbah með fjölda verslana, veitinga- og skemmtistaða.

Maspalomas

Í Maspalomas eru fagrir garðar og einstaklega fallegt umhverfi. Þar er mesta úrvalið af smáhýsum, hin glæsilega verslunarmiðstöð Faro 2, 18 holu golfvöllur, vatnsrennibrautagarður og hinn þekkti Faro viti. Í Maspalomas er fjölda góðra veitingastaða og skemmtilegt mannlíf jafnt að nóttu sem degi.

Hagstætt verðlag

Kanaríeyjar eru fríhöfn og því er verðlag fremur hagstætt, sérstaklega á merkjavöru af öllu tagi og skarti hvers konar, t.d. úrum, skartgripum, myndavélum, hljómtækjum og rafmagnsvörum. Á mörkuðum og hjá götusölum er um að gera að prútta um verðið, enda viðtekin venja og hin besta skemmtun.

Kanarí


Áhugaverðir staðir


Golf á Kanarí (á ensku)

 

Kort af gististöðum Sumarferða á Kanaríeyjum

 

Áhugaverðir vefir með ítarlegri upplýsingar um Kanaríeyjar:

Allt um Kanarí: www.grancanaria.com

Veðrið á Kanarí



Powered by ODIN