UPPLIFUN
Íbúðahótel í hjarta Ensku strandarinnar - nálægt Kasbah verslunarmiðstöðinni og steinsnar frá ströndinni.
VISTARVERUR
Í boði eru bæði stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Allar íbúðirnar eru með stofu, eldhúskrók, baðherbergi og svölum.Í eldhúskróknum er ísskápur og eldavél, en auk þess er í íbúðunum loftkæling, gervihnattasjónvarp
Innifalið í verði er morgunverður en hægt er að panta hálft fæði gegn aukagjaldi.
AÐSTAÐA
Í sundlaugargarðinum er sundlaug, upphituð á veturna, og svæði með sólstólum og sólhlífum. Fyrir börnin er buslulaug, leikvöllur og barnaklúbbur.
Í anddyri er hægt að komast í nettengdar tölvur og leigja öryggishólf.
Banki og verslun eru rétt við hótelið.
- Heimilisfang: Avda. de Italia, 21
35100 Playa del Ingles
Gran Canaria
Spain
- Símanúmer: