Kanarí

Cordial Mogán Playa

4

Nýlegt stórglæsilegt hótel í hjarta litríka smábæjarins Puerto de Mogán, aðeins 5 mínútur frá ströndinni og höfninni. Hótelið er 4 stjörnur-plús með 950 herbergi á svæði sem nær yfir 48.000 fermetra. Athugið ekki er boðið uppá akstur til og frá Mogan.

Glæsihótel í hjarta Puerto de Mogán!

Puerto de Mogán, einnig þekkt undir nafninu litla Feneyjar, er lítill bær í 25 mínútna fjarlægð frá Ensku ströndinni. Bærinn, sem er þekktur fyrir besta veðrið á Kanaríeyjum, er byggður upp út frá höfninni sem er umkringd litlum litríkum húsum sem eru ekki hærri en þriggja hæða með fallegum görðum með miklu blómalífi.

Höfnin er stórglæsileg með fjölda girnilegra veitinga og kaffistaða þar sem hægt er að borða úti með útsýni yfir smábátana og mannlífið, eða fá sér rómantíska göngu að kvöldi til þegar sólin er að setjast. Við hliðina á höfninni er lítil falleg strönd þar sem hægt er að leigja sólbekki.

Stórglæsilegt hótel
Þetta er stórglæsilegt hótel í hjarta Puerto de Mogán, aðeins 5 mínútna fjarlægð frá ströndinni og höfninni. Hótelið er 4 stjörnu-plús með 950 herbergi á svæði sem nær yfir 48.000 fermetra og stóran og glæsilegan garð þar sem eru tvær sundlaugar með góðri sólbaðsaðstöðu.

 

 

Nóg við að vera
Á svæði hótelsins eru nokkrir veitingastaðir, þar með talið einn veitingastaður við sundlaugina, einn á la carte veitingastaður og einn hlaðborðs (buffet) veitingastaður. Fyrir þá sem vilja gera meira en að sitja við sundlaugina er hægt að fara í tennis, skvass og keilu en á svæðinu er einnig krakkaklúbbur þar sem krakkar geta leikið sér á daginn og öll kvöld er skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.

 

Athugið að rútuferðir til og frá flugvelli eru ekki í boði.

  • Heimilisfang: Avda. de los Marrero, 2, 35138 Playa de Mogán, Gran Canaria Spain
  • Símanúmer: 00 34 928 724 100
Powered by ODIN