Kanarí

Lopesan Baobab

5
dtp_without_Congresspalace.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Stórglæsilegt hótel, sem er hannað undir miklum áhrifum frá Afríku, og heitir eftir Baobab trénu sérstaka. Hótelið sem er nýlega opnað er þriðja lúxushótel Lopesan-keðjunnar á Gran Canaria og það glæsilegasta að okkar mati. Baobab hótelið verður sannarlega flaggskip okkar í ár, enda fer þar saman glæsileg gisting og eins


UPPLIFUN

Stórglæsilegt hótel sem er hannað undir miklum áhrifum frá Afríku, og heitir eftir Baobab trénu sérstaka.

Hótelið er á frábærum stað í Maspalomas / Meloneras, skammt frá vitanum, Faro. Hótelið sem er nýlega opnað er þriðja lúxushótel Lopesan-keðjunnar á Gran Canaria og það glæsilegasta, en fyrir eru Gran Villa del Conde og Costa Meloneras.


VISTARVERUR

Herbergin eru glæsilega innréttuð í mildum brúnum tónum og þar er nánast allur hugsanlegur lúxus, s.s. loftkæling, sími, öryggishólf (gegn gjaldi), smábar (gegn gjaldi), skrifborð, gervihnattasjónvarp og internet (gegn gjaldi). Á baðherbergjum er bæði sturta og stórt baðkar, hárþurrka og sloppar.

Frá svölum er útsýni yfir hafið, heillandi sandöldur, pálmalundi eða fjöll í fjarska.


AÐSTAÐA

Í stórum og mikilfenglegum sundlaugargarðinum verða samtals átta upphitaðar sundlaugar, ein barnalaug og gerviströnd með 3 nuddpottum.

Netkaffi, þar sem hægt verður að komast í nettengdar tölvur gegn gjaldi.


AFÞREYING

Hægt er að spila pool og borðtennis á hótelinu og tennis í næsta nágrenni. Á kvöldin verða í boði skemmtiatriði og sýningar.

Hægt er að spila golf á golfvöllunum Maspalomas Golf (3 km fjarlægð) og Meloneras Golf (500 m fjarlægð).


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, hver um sig með mismunandi áherslur, t.d. verður sérstök áhersla á ferska sjávarrétti á sundlaugargrillinu, og veitingastaður sem býður allt það besta frá Afríku.

Einnig eru fjórir barir á hótelinu, þar sem áherslan getur verið á kaffi, ferska ávaxtasafa eða framandi kokteila.


FYRIR BÖRNIN

Í sundlaugargarðinum er sér svæði fyrir börnin - Panchi World - barnaklúbbur fyrir 4-12 ára, barnalaug og margt fyrir smáfólkið við að vera.


STAÐSETNING

Hótelið er á frábærum stað í Maspalomas / Meloneras, skammt frá vitanum, Faro. Baobab hótelið verður sannarlega flaggskip okkar í ár, enda fer þar saman glæsileg gisting og einstakt verð.


SJ 02.09

  • Heimilisfang: Meloneras Gran Canaria
  • Símanúmer:
Powered by ODIN