Veðrið á Kanarí
Vor allt árið
Það má segja að það sé ávallt vor í lofti á Kanaríeyjum þar sem hitastigið er á bilinu 18 til 25 gráður allt árið. Enda eru Kanaríeyjar þekktar fyrir besta veðurfar í heimi. Á Kanarí er gott veður og þar er gott að vera!
Eins og á flestum eyjum Kanaríeyjaklasans er þurrt og sólríkt allt árið við suðurstrendurnar, sjórinn er passlega heitur (18-22 gráður) og sólarstundir á ári um 2.700.
Það er útbreiddur misskilningur að Kanaríeyjar - sem eru á sömu breiddargráðu og Suður-Flórída og Bahamaeyjar - séu óbærilega heitar á sumrin. Svo er alls ekki, því hafgola og hafstraumar halda hitanum jöfnum og þægilegum allt árið um kring.
Áfangastaðir okkar á Gran Canaria eru á suðurodda eyjarinnar, í sólríku skjóli fyrir norð-austlægum staðvindum. Hálendið á eynni miðri dregur til sín megnið af þeirri litlu úrkomu sem berst til eyjarnnar og gerir loftslagið á suðurhluta Gran Canaria að einhverju því besta sem þekkist.