Skoðunarferðir

Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.

Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.



Drekahellar og perluverksmiðjan Majorica

Byrjað er á að koma við í Glerblástursverksmiðjunni Gordiola og sjá blásarana að störfum. Þaðan er haldið til Manacor í heimsókn í perluverksmiðjuna Majorica, en perlurnar þeirra eru einar þekktustu perlur í heimi.

Síðan er haldið til hafnarbæjarins Porto Cristo og farið niður í hina frægu Drekahella sem eru staðsettir rétt fyrir utan bæinn. Eftir að komið er úr Drekahellunum er frjáls tími í Porto Cristo.

Þaðan er svo haldið til Els Calderes sem er gamall búgarður, dæmigerður fyrir Mallorca.



Herragarðsveisla Son Amar

Ómissandi kvöldskemmtun sem haldin er á gömlum búgarði, Son Amar, sem er staðsettur rétt fyrir utan Palma. Einstök skemmtiatriði á heimsmælikvarða svo sem sýning flamencodansara, fjöllistamanna og tónlistarmanna.

Einnig er boðið upp á kvöldverð að hætti hússins, grillaðan kjúkling ásamt fersku salati, bökuðum kartöflum og tilheyrandi.



Marineland og Westernpark

Heimsókn í sædýragarðinn Marineland og vatnsrennibrautagarðinn Westernpark, sem er í kúrekastíl

Farið er í sædýragarðinn Marineland þar sem margt er hægt að skoða, til dæmis fiskasafn, skriðdýr, slöngur, fugla, apa og seli, að ógleymdri sýningu höfrunga og sæljóna.

Síðan er haldið í Westernpark sem er vatnsrennibrautagarður með einstaklega fjölskylduvænu og skemmtilegu umhverfi í kúrekastíl. Garðurinn býður upp á fjöldann allan af ýmis konar rennibrautum fyrir alla aldurshópa. Ásamt því að bjóða upp á skemmtilegar sýningar af ýmsu tagi.

Frábær blanda fyrir alla fjölskylduna.



Drekahellar og Perluverksmiðjan

Byrjað er á að koma við í glerblásturs verksmiðjunni Gordiola og sjá blásarana að störfum. Þaðan er haldið til Manacor þar sem að Majorica perluverksmiðjan er heimsótt. Síðan er haldið til hafnarbæjarins Porto Cristo og farið niður í hina frægu Drekahella sem eru staðsettir rétt fyrir utan bæinn. Eftir að komið er úr Drekahellunum er frjáls tími í Porto Cristo. Þaðan er svo haldið til Els Calderes sem er gamall dæmigerður mallorkínskur búgarður. Að lokum er komið við í leðurversluninni Alorda.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.

Herragarðsveisla Son Amar

Ómissandi kvöldskemmtun sem haldin er á gömlum búgarði, Son Amar, sem er staðsettur rétt fyrir utan Palma. Einstök skemmtiatriði eru á boðstólnum svo sem sýning flamencodansara, og sitthvað fleira. Boðið er upp á kvöldverð að hætti hússins, grillaðan kjúkling ásamt fersku salati og tilheyrandi.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.

Valdemossa

Ekið er til litla fallega fjallaþorpsins Valldemossa, þar sem Chopin dvaldi eitt sinn með ástkonu sinni. Kirkjan, klaustrið, gamla apótekið og vistarverur þær sem Chopin notaði meðan hann dvaldi þarna er skoðað. Frá Valldemossa liggur leiðin eftir vesturströndinni gegnum listamannabæinn Deia, niður Soller dalinn til Port de Soller þar farið er um borð í bát og siglt meðfram klettóttri ströndinni inn í fallega vík, Sa Calobra. Frá Sa Calobra er svo haldið í rútu upp Slönguveginn svokallaða og ekið til helgasta staðar Mallorca, Lluc og skoðað kirkjuna og kapelluna. Frá Lluc er svo haldið heim á hótel í gegnum bæinn Inca.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.

Inca útimarkaður

Inca er þriðji stærsti bærinn á Mallorca og í daglegu tali kallaður „Leðurbærinn INCA”. Eins og siður er í flestum bæjum og borgum Spánar er haldinn þar útimarkaður sem er einn sá stærsti og vinsælasti á eyjunni. Á markaðnum má finna allt frá fötum, skarti og matvöru auk þess sem mikið er um leðurvörur, s.s. töskur, skó og jakka. Vert er minnast þess að í Inca eru framleiddir hinir frægu Campers skór.

Powered by ODIN