Veðrið á Mallorca

Sumareyja fyrir sumarferðir

Mallorca er þekkt fyrir frábært loftslag. Þar er afar sólríkt sjaldan óbærilega heitt og auðvitað nánast aldrei kalt. Heitast er í ágúst en í júlí og ágúst má búast við nokkrum afar heitum dögum. Úrkoma er sáralítil yfir sumarið en talsvert rignir á Mallorca að vetri til.

Miðjarðarhafið mildar loftslagið á Mallorca. Vind hreyfir flesta daga, sem gerir jafnvel mestu hita bærilega, en yfir háveturinn er eyjan engin sérstök sólarparadís þó loftslag sé milt og þægilegt. Árstíðasveiflurnar eru góðar fyrir gróðurinn, sem er fallegur og fjölbreyttur á eynni, og ekki síður fyrir innfædda sem eru áreiðanlega fegnir að ferðamannavertíðin stendur ekki allt árið!

Mallorca er líklega hinn fullkomni mannabústaður með eitthvert besta sumar sem fyrirfinnst og einskonar vetur í kjölfarið þar sem lífið gengur sinn vanagang í mildu Miðjarðarhafsloftslagi.

Þrátt fyrir ágang ferðamannaiðnaðarins heldur þessi litla eyja sérkennum sínum og furðulegri fjölbreytni. Þann hluta ársins sem ferðamönnum fækkar verulega ganga um 600.000 íbúar til margvíslegra starfa sinna í loftslagi sem hentar betur til skrifstofustarfa en sólbaða - að vísu með 3 tíma hádegismat og kvöldverði um tíuleytið! Þess á milli tekur Mallorca betur á móti okkur en flestir staðir og lumar á ótrúlegum ævintýrum á sínum 3.600 ferkílómetrum.

Powered by ODIN