Portúgal
Sólarstaður fjölskyldunnar!
Praia da Rocha
Strandbærinn Praia da Rocha stendur við eina af fallegustu ströndum Algarve-héraðsins á suðurströnd Portúgals. Bærinn er einn vinsælasti ferðamannastaður á svæðinu. Þarna eru góðir veitingastaðir á hverju horni og stutt í alla þjónustu.
Mikið og fjölbreytt mannlíf er einkennandi og ekki spillir fyrir að stutt er til miðbæjar Portimao. Maturinn er fyrsta flokks og loftslagið engu öðru líkt. Praia da Rocha yljar ferðamönnum um hjartarætur og uppfyllir þær væntingar sem til hans eru gerðar.
Portimao er annar stærsti bær Algarve héraðsins. Gaman er að rölta um miðbæ Portimao og kíkja inn í hinar fjölmörgu verslanir sem þar er að finna, eða setjast inn á kaffihús og njóta mannlífsins. Við höfnina í Portimao eru lífleg torg og uppáhalds veitingahús heimamanna með nýveiddar sardínum í aðalhlutverki.
Albufeira
Þessi gamli fiskimannabær, er orðinn einn af þekktari ferðamannastöðum í Algarve héraði og ekki að ástæðulausu. Góð þjónusta og ljúft viðmót heimamanna svíkur engan sem fer í frí til Albufeira.
Gamli bærinn státar af kirkjum bæjarins og öllum elstu byggingunum. Bæjartorgið iðar af mannlífi með úrvali af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Í hinum þröngu götum út frá torginu má finna margar skemmtilegar sérverslanir sem taka vel á móti ferðamönnum.
Í hinum enda bæjarins er Laugavegurinn eða The Strip. Þar má finna úrval af veitingastöðum, börum og verslunum. Næturlífið á Laugaveginum er skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Portúgal
Portúgal tryggir þér og fjölskyldunni frábæra gististaði sem valdir hafa verið af kostgæfni og ánægðir ferðalangar sækja í aftur og aftur. Portúgal er land andstæðna og býr yfir óendanlegum tilbrigðum lífs og listar. Þarna mætast gamli og nýi tíminn og mynda heillandi veröld. Það er eitthvað ósnortið, sem erfitt er að útskýra, við Portúgal, landið og þjóðina sem þar býr. Náttúrufegurð og heillandi menning og portúgölsk hlýja og gestrisni mæta ferðamanninum hvarvetna. Algarve-hérað er rómað fyrir fallegar og víðuáttumiklar strendur sem eru brotnar upp með tikomumiklum klettamyndum. Stutt er í heimsborgirnar Lissabon og Sevilla á Spáni en það eru sögufrægar og skemmtilegir bæir sem vert er að heimsækja. Algarve er pardís golfarans og þar ættu allir kylfingar að finna völl við sitt hæfi.
Portúgal er aðeins minna en Ísland og íbúarnir eru um 11 milljónir. Í höfuðborginni Lissabon búa rúmlega 2 milljónir. Frá flugvelli í Faro til Albufeira er 35 mín. akstur.
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Sumarferðir bjóða uppá rútuferðir á milli flugvallar og hótels erlendis. Akstur þarf að bóka og fullgreiða áður en lagt er af stað í ferðina.