Sumarferðir

Algengar spurningar og svör við þeim

Finnir þú ekki svarið við þinni spurningu hér að neðan geturðu sent okkur tölvupóst.

Hvað geri ég ef farangur skemmist eða týnist í flugi?

Flugfélagið sem sér um flugið ber ábyrgð á að koma farangri farþega til skila, svo það er fljótlegast að snúa sér beint til flugfélagsins. Hér að neðan eru upplýsingar um hvert hægt er að snúa sér.

Réttur farþega

Upplýsingar um rétt farþega vegna farangurs sem tefst, glatast, skemmist eða eyðileggst á vef Neytendastofu


Iceland Express

Hvert á ég að hafa samband út af týndum farangri?

Ef þú vilt fá upplýsingar um tapaðan farangur er best hafa samband við þjónustuaðila Iceland Express sem sér um allt varðandi endurheimtu á töpuðum farangri. Símatími er alla virka daga á milli kl. 9 og 17 — beinn sími er 824 4036.

Ferðataskan mín skemmdist í flugi með Iceland Express. Hvert sný ég mér?

Ef ferðataskan þín laskast í flugi með Iceland Express þarftu að gera tjónaskýrslu.

Best er að gera tjónaskýrsluna strax á flugvellinum en í raun nægir að gera hana innan við 7 dögum eftir lendingu.

(Athugaðu að ef þú gerir ekki tjónaskýrsluna strax á flugvellinum geturðu komið á skrifstofu Iceland Express [staðsetning og opnunartímar] og gert hana þar. Mundu að hafa töskuna meðferðis þegar þú kemur.)

Þegar þú hefur fyllt út tjónaskýrsluna geturðu haft samband við Iceland Express og óskað eftir bótum frá þeim með því að fylla út fylla út farangursform á vefnum.

Starfsmaður í þjónustuveri Iceland Express mun svo hafa samband við þig innan við 72 klukkustundum eftir að þeim berst pósturinn.

-
Powered by ODIN