Sumarferðir

Um Sumarferðir

Á sama tíma og bylting til hagsbóta fyrir neytendur hefur orðið í flugrekstri á undanförnum árum virðist sem rekstur ferðaskrifstofa, einkum hér á landi, hafi á margan hátt setið eftir. Starfsemi þeirra hefur verið hefðbundin og nánast íhaldssöm og því miður hefur íslenskum ferðaskrifstofum ekki tekist að neinu marki að nýta sér nýja tækni og vinnubrögð til þess að lækka verð sem skyldi. Sumarferðum hefur tekist að lækka hefðbundinn rekstrarkostnað ferðaskrifstofa um verulegar fjárhæðir og með traustum viðskiptasamböndum samfara langri reynslu í þjónustu við íslenska ferðalanga lækkum við ferðakostnað þeirra svo um munar.

Hjá okkur fer nær öll sala fram í gegnum netið eða síma. Áhersla er lögð á svokallaða “umbúðalausa þjónustu” (no-frill service) þar sem þættir á borð við skilvirka þjónustu, framleiðni starfsfólks og áreiðanlega flugáætlun eru settir í öndvegi. Með því að grundvalla rekstur Sumarferða á þeim möguleikum sem upplýsinga- og samskiptatækni nútímans býður upp á, næst dýrmætt forskot í samkeppninni. Í fyrsta lagi gefst okkur tækifæri til þess að innleiða stórfellda verðlækkun á hefðbundnum sumarleyfisferðum. Í annan stað mun sá tímasparnaður sem ávinnst með breyttum starfsaðferðum nýtast til þess að fylgjast enn betur með þeim ónýttu tækifærum sem stöðugt eru að bjóðast víða um heim.

Starf Sumarferða hefur farið vel af stað og við viljum þakka þeim fjölmörgu íslensku ferðalöngum sem hafa hjálpað okkur að brjótast út úr þeirri kyrrstöðu sem allt of lengi hefur ríkt í tækifærum landsmanna til ódýrra ferðalaga á erlenda grundu.

Ferðaskrifstofa Íslands ehf. á og rekur ferðaskrifstofuna Sumarferðir.

 

Staðsetning, afgreiðslutími og bókunarsími

Söluskrifstofa Sumarferða er að Lágmúla 4, 108 Reykjavík.

Opið er alla virka daga milli kl. 9:00 - 17:00 en auk þess er bókunarsími opinn alla virka daga kl. 9.00 - 17.00.

 

Starfsfólk
Sölumenn
Jenný Ólafsdóttir jenny@sumarferdir.is  
Hrönn Johannsen hronn@sumarferdir.is  
 
Golfdeild
Ingibergur Jóhannsson bergur@sumarferdir.is


Viltu fylgjast með?

Skráðu þig í netklúbbinn til að missa ekki af neinu!



Með kveðju,

Starfsfólk Sumarferða

Powered by ODIN