Tenerife

Hotel Gran Tacande

5

Hotel Gran Tacande er nýtt, stórglæsilegt lúxushótel á Costa Adeje, við dekurströndina Playa del Duque. Hótelið er sannarlega eitt af bestu og glæsilegustu hótelum á Tenerife og það eru sérstök forréttindi að fá að kynna þetta hótel.


UPPLIFUN

Hotel Gran Tacande er nýtt, stórglæsilegt lúxushótel á Costa Adeje strandlengjunni, við Playa del Duque ströndina. Hönnunin á hótelinu er sérstaklega skemmtileg. Hótelinu er skipt upp í 4 byggingar og hvert hús hefur sinn sérstaka kanaríska stíl og arkítektúr: San Sofé, San Sebastian, Malpaís og Casa Fuerte. (Orðið "Tacande" kemur úr gamla "guanche" tungumálinu og þýðir hraun úr eldfjalli og var það mikilvægur þáttur í hönnuninni á þessu stórglæsilega hóteli). Keppst er við að gera dvöl þína ógleymanlega með frábærri staðsetningu, glæsilegri hönnun og úrvals þjónustu og afþreyingu.


VISTARVERUR

Herbergin eru í fjórum byggingum og snúa þau ýmist að sundlaugargarðinum, eða með útsýni yfir Costa Adeje og Playa de las Americas eða til fjalla. Herbergin eru sérstaklega rúmgóð (46m2), stórglæsileg í nýlendustíl, með tvö stök rúm eða hjónarúm, svefnsófa, borði, skrifborði ásamt rúmgóðum svölum með setustólum. Herbergin eru útbúin með loftkælingu, síma, sjónvarpi, internetmöguleika, tónlistarútvarpi, öryggishólfi og minibar. Baðherbergin er mjög stór, tvískipt með sér sturtu, baðkari og hárþurrku.


AÐSTAÐA

Á hótelinu eru tvær skemmtilegar sundlaugar (ein upphituð) ásamt barnalaug og nuddpotti. Í sundlaugargarðinum er fyrsta flokks aðstaða til sólbaða; sólbekkir, handklæði og sólhlífar, notalegur veitingastaður með fallegri verönd ásamt snakkbar fyrir þá sem vilja eitthvað einfaldara. Tennisvöllur, heilsulind, líkamsræktarsalur, internetaðstaða og að sjálfsögðu gestamóttaka sem er opin allan sólarhringinn.


AFÞREYING

Við hótelið er tennisvöllur, og 2000 fermetra heilsulind www.vitanovatenerife.com sem er opin gestum hótelsins gegn vægu gjaldi. Fyrir þá sem vilja halda sér í formi og láta dekra við sig en þar er meðal annars að finna nuddpott, tyrknest bað, gufubað og tækjasal. Boðið er uppá alhliða nudd og ýmsar meðferðir sem stuðla að vellíðan, ásamt snyrti og hárgreiðslustofu.


VEITINGASTAÐIR

Á Gran Tacande eru 3 veitingastaðir þar sem hver og einn býður upp á fjölbreytta matseðla og úrvalsþjónustu. Einn af þeim er Bocoy, A la carte, veitingastaður sem er nafntogaður á suðurhluta Tenerife. Bocana Grill er fallegur hádegisstaður við sundlaugina og Zurron Buffet er hlaðborðsstaður hótelsins við sundlaugina, þar sem einnig er hægt að borða undir berum himni. Frábært morgunverðar og kvöldverðarhlaðborðið svignar undan kræsingunum en veitingastaðirnir bjóða upp á kanarískan, spænskan og alþjóðlegan mat. Nokkrir hótelbarir eru á staðnum þar sem er róleg stemning til að njóta andrúmsloftsins eða njóta þess að hlusta á tónlist.


FYRIR BÖRNIN

Á hótelinu er til staðar leikherbergi þar sem er barnagæsla og krakkaklúbbur með dagskrá fyrir börn en nauðsynlegt er að bóka það með dagsfyrirvara nema mikill fjöldi barna sé á hótelinu.


STAÐSETNING

Hótelið stendur nánast alveg á Playa del Duque ströndinni við hlið Bahia del Duque hótelsins þar sem öll aðstaða er sem glæsilegust. Í nágrenninu er fjöldi veitingastaða. Hin glæsilega verslunarmiðstöð Plaza del Duque er rétt við hótelið með, apóteki, banka, matvörubúð og sérverslunum með merkjavöru. Playa de las Americas er í 3,5 km fjarlægð frá Costa Adeje ströndinni.


BÓKUNARMÖGULEIKAR

Herbergin taka 2 fullorðna og tvö börn eða þrjá fullorðna, þar sem þriðji aðilinn, eða börnin tvö sofa í sófanum. Ef fólk vill festa sér sjávarsýn þá er það hægt gegn gjaldi.

  • Heimilisfang: Dreamplace Hotels and Resorts Calle Alcalde Walter Paetzmann, s/n Playa del Duque, 38670 Costa Adeje, Tenerife, Spain
  • Símanúmer:
Powered by ODIN