Tenerife

Iberostar Torviscas Playa

4

Hotel Iberostar Torviscas Playa er mjög gott 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Adeje ströndinni á Tenerife.  Hótelið býður upp á frábæra afþreyingu fyrir fullorðna og börn enda er það aðalsmerki Iberostar hótelkeðjunar. Aðeins eru 150 metrar frá hótelinu á Torviscas ströndina.  Innifalið er hálft fæði. 

UPPLIFUN

Hotel Iberostar Torviscas Playa er mjög gott 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Adeje ströndinni á Tenerife. Hótelið tilheyrir einni þekktustu hótelkeðju Spánar, Iberostar sem er þekkt fyrir gæði þar með talið frábæra dagskrá fyrir börn jafnt sem fullorðna. Aðeins eru 150 metrar frá hótelinu á Torviscas ströndina.  Góður veitingastaður er á hótelinu og einnig er veitingastaður og bar við sundlaugina þar sem hægt er að kaupa sér létta máltíðir. Nýbúið er að endurnýja allt sundlaugarsvæðið og barnaklúbinn sem og vistaverur innanhúss.
Aðal veitingastaður hótelsins er opinn frá 07:30 til 10:30 fyrir morgunverð og frá kl. 18:30 til 21:30 á kvöldin.  Veitingahúsið við laugina er opið frá 12:30 til 15 og barinn við laugina er opinn frá 12:30 til 15:00 og barinn til kl. 18. Skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa, þar með talið skemmtidagskrá 7 kvöld í viku. 

VISTAVERUR

Herbergin  eru rúmgóð og snúa ýmist út í garð eða út að sjó, þó með mismiklu útsýni.  Svalir eða verönd á öllum herbergjum. Loftkæling, smábar, sjónvarp, sími og öryggishólf á öllum herbergjum.

  • Heimilisfang: Ernesto Sarti, 5 38679 Costa Adeje Tenerife
  • Símanúmer: Playa de las AmericasTenerife
Powered by ODIN