Tenerife

Veðrið á Tenerife

Gróðursæld í norðri - sól í suðri

Á Tenerife er veðrið einfaldlega gott allan ársins hring. Meðalhiti er 20-22 gráður, á svalari dögum fer hitinn vart undir 15 gráður en sjaldan yfir 30 gráður í sumarhitum. Árstíðirnar koma og fara án þess að nokkur maður taki eftir því.

Sá munur er þó á Tenerife og öðrum eyjum Kanaríeyjaklasans að talsverður munur er á veðurfari á mismunandi stöðum eyjarinnar. Há og tignarleg fjöllin á miðri eynni valda því að stundum er skýjað á norðurhlutanum og þar rignir dálítið, einkum seint á haustin. Hátt í fjöllum er von á snjókomu í allt að 3 mánuði á ári. En á suðurhluta Tenerife er eitthvert stöðugasta og besta loftslag á jörðinni - sól og blíða allan ársins hring.

Áfangastaðir okkar, Playa de Americas og Costa Adeje, eru á sólríkasta hluta Tenerife, sem jafnframt er einn veðursælasti hluti allra Kanaríeyja.

Svo er hálendinu á Tenerife einnig fyrir að þakka að eyjan býður upp á fjölbreyttari náttúru en aðrar Kanaríeyjar. Norðurhlutinn er sérlega gróðursæll og státar af fjölbreyttustu gróðurflóru eyjanna. Og í víkum og vogum suðurhlutans verða til veðurparadísir eins og Americas-strendurnar, þar sem hundruðir þúsunda gesta njóta blíðunnar allan veturinn.

Powered by ODIN