Benidorm

Almeria

Sólríkur og menningarlegur staður í hjarta Andalúsíu!

Sólríkar strendur, hvítkölkuð hús, nautaat, senjórítur og seiðandi flamenco-tónlist. Öll þessi sérkenni spænskrar menningar tilheyra næststærsta héraði Spánar, Andalúsíu. Fyrir utan einstaka veðurblíðu og fallegar strendur er þar að finna fjölbreytt landslag, sterka menningu og elskulegt fólk. Í austurhluta héraðsins og við Miðjarðarhafið stendur borgin Almeria. Borgin á sögu allt aftur til ársins 955 en í dag búa þar 200 þúsund manns. Allt í kringum Almeria er fjöldi lítilla þorpa, hvert með sitt einkenni og sjarma.




Strandbærinn Roquetas de Mar

Í 18 km fjarlægð frá Almeria er strandbærinn Roquetas de Mar. Í bænum búa um 66 þúsund manns og er einstaklega skemmtilegt að sjá hvernig líf ferðamannsins og hins almenna borgara fléttast saman. Á Roquetas de Mar upplifir ferðamaðurinn svo sannarlega hina einstöku spænsku menningu. Roquetas de Mar er tilvalinn fjölskyldustaður. Þar er allt aðgengi einstaklega gott. Hótelin standa almennt við eða nálægt ströndinni. Lítið er um brekkur og svæðið því þægilegt yfirferðar. Bærinn er snyrtilegur og þar hefur öllu verið vel við haldið. Meðfram ströndinni er mjög skemmtileg göngugata þar sem lágreist hótel standa. Þar er einnig fjöldi veitingahúsa, verslana og kráa. 18 holu golfvöllur er staðsettur í miðjum bænum.



Spennandi afþreying og verslunarmöguleikar í boði

Mikil og fjölbreytt afþreying er í boði í og við Roquetas de Mar. Þar er m.a. vatnsrennibrautagarður, sædýrasafn, go-kart, línuskautasvæði, falleg smábátahöfn og lítill barnaskemmtigarður. Útimarkaður er haldinn alla fimmtudaga. Þar er einnig að finna stærsta verslunarhús Andalúsíuhéraðs, Gran Plaza en þar eru verslanir eins og H&M, Massimo Dutti, Casa, Pull & Bear, Jack & Jones, Zara og Toys R Us. Alls eru verslanirnar í Gran Plaza 125 og úrvalið því mikið og fjölbreytt. Þar er einnig fjöldi veitingahúsa, leiktækjasalur, keiluhöll og 13 sala kvikmyndahús.



Fjölbreytt mannlíf

Fyrir þá sem vilja skoða sig um er svæðið í kringum Roquetas de Mar mjög fjölbreytt. Akstur til Almeria tekur u.þ.b ½ klst og skemmtilegt að aka meðfram klettóttri ströndinni til borgarinnar. Almeria er lífleg 200 þúsund manna borg með fjölbreyttu mannlífi, verslunum, veitingahúsum og mörkuðum. Tilvalið er að ganga Römbluna og kíkja á fjölbreytt mannlífið. Góðar strætisvagnasamgöngur eru á milli Roquetas de Mar og Almeria.



Granada fallegasti staðurinn í Andalúsíu

Fyrir þá sem vilja fara í lengri ferðalög er ógleymanlegt að heimsækja Granada, ein þekktasta og mest heimsótta borg Spánar. Granada var höfuðborg Andalúsíu á tímum mára, en arabar réðu yfir Granada í næstum 800 ár eða allt fram á 15. öld. Þeir voru þekktir fyrir mikla snilli í byggingalist og ber þá helst að nefna hina frægu Alambra höll, helsta aðdráttarafl ferðamanna. Granada er á heimsminjaskrá Unesco og er að margra áliti einn af fallegustu stöðum heims. Fjallgarðurinn Sierra Nevada umkringir borgina. Svæðið í kringum Sierra Nevada er eitt þekktasta skíðasvæði Spánar.


Almennar upplýsingar

Gran Plaza verslunarhúsið
Vatnsrennibrautagarðurinn
Sædýrasafnið
Go-Kart
Almennt um Roquetas de Mar
Almennt um Almeria

Viltu leigja bíl?

Sumarferðir hafa gert samning við bílaleiguna Centauro um hagstæð verð á bílaleigubílum. 
Traust og góð bílaleiga sem er ávallt með nýjustu bílana á markaðinum.
Smelltu hér til að skoða verð og bóka bílinn þinn.

Bílaleigja

 

Powered by ODIN