Calpe
Perlan á Costa Blanca ströndinni á Spáni
Calpe er aðlaðandi sjávarþorp sem býður upp á mjög marga skemmtilega kosti fyrir ferðamenn hvort sem er til afslöppunar eða afþreyingar. Hann er hefðbundinn spænskur smábær með þröngum götum og útiveitingastöðum í skemmtilegum Miðjarðarhafsstíl, en jafnframt nútímalegur strandbær með tvær sandstrendur, alls 11 km langar, sem umlykja bæinn.
Ifach höfðinn
Hinn 332m hái Ifach höfði skilur strendurnar að. Ifach höfði er eitt af helstu táknum Costa Blanca strandarinnar, þar sem hann rís tígulegur upp úr Miðjarðarhafinu. Hann er einnig kallaður Norðurhöfði til aðgreiningar frá Gíbraltarhöfða í suðri. Ifach þjóðgarðurinn er ógleymanleg útivistarparadís með skemmtilegum göngu- og klifurleiðum og óvenju fjölbreyttu fuglalífi. Calpe býður upp á stórkostlega möguleika til siglinga og köfunar, en auk þess er þar að finna mjög góðan 9 holu golfvöll sem hannaður er af Javier Arana. Skemmtigarðar og verslunarmiðstöðvar Benidorm og furðuþorp fjallanna eru í þægilegri fjarlægð frá þessum fjölskylduvæna stað.
Frábærir veitingastaðir
Fólk kemur hvaðanæva af Costa Blanca ströndinni til Calpe til að borða á einhverjum af fjölmörgum úrvals veitingastöðum í gamla bænum. Ferskt sjávarfang er alltaf hluti af matseðli dagsins, en auk þess má finna hefðbundna spænska tapas veitingastaði, ásamt líbönskum, ítölskum, indverskum, þýskum og enskum veitingastöðum. Fleiri en einn veitingastaður í Calpe hefur eina eða fleiri Michelin stjörnur og nóg er af börum og annarri afþreyingu þannig að þeir sem sækja Calpe heim hafa af nógu að taka varðandi mat, drykk og alla almenna skemmtan. Frægastur veitingastaða í Calpe er Girasol (Sólblómið), með 2 Michelin stjörnur, ótrúlegan vínkjallara og meistarakokkinn og eigandann Joachim Koerper, sem er af flestum talinn meðal fremstu matreiðslumeistara heims. Vissara er þó að panta borð með góðum fyrirvara á Girasol.
Saga og hefðir
Calpe á sér langa og áhugaverða sögu og þar hafa fundist fornleifar íberískra ættbálka frá nokkur hundruð árum fyrir krist. Einnig má finna ótal merkilegar minjar og byggingar frá þeim tíma sem márar og kristnir menn bjuggu saman í sátt og samlyndi í 800 ár. Mörg skemmtileg söfn eru í gamla bænum sem gefa glögga mynd af langri og fjölbreyttri sögu staðarins.
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Sumarferðir bjóða uppá rútuferðir á milli flugvallar og hótels erlendis. Akstur þarf að bóka og fullgreiða áður en lagt er af stað í ferðina. Athugið að akstur til og frá Calpe er eingöngu í boði á miðvikudögum.