Mallorca
gisting í hæsta gæðaflokki - og á rétta verðinu!

Mallorca er einn vinsælasti sumardvalarstaður Evrópu enda býður eyjan upp á einstaka blöndu náttúrufegurðar, menningar og skemmtunar fyrir alla fjölskylduna. Veðrið er auðvitað frábært, strandirnar fullkomnar og eitthvað að gerast bókstaflega allan sólarhringinn. Gistingar okkar eru flestar á íbúðahótelum og hótelum hinnar margverðlaunuðu hótelkeðju VIVA, sem er leiðandi í gistingum um alla Mallorca og þekkt fyrir frábæra þjónustu, fyrirmyndar gistiaðstöðu, skemmtilega hönnun, afslöppun og fjör fyrir alla fjölskylduna. Nú er hún loksins á rétta verðinu og ekki eftir neinu að bíða!
ALCUDIA
Alcudia er á norðurströnd Mallorca við hinn glæsilega Alcudia-flóa. Hér er fjörið ögn minna en á suðurströndunum og meiri áhersla lögð á fjölskyldugildin - hreinar strendur og fjölbreytt og fallegt umhverfi. Þeir sem vilja skemmta sér lengi nætur geta fundið eitthvað við sitt hæfi en Alcudia er fyrst og fremst fjölskylduparadís. Akstur frá flugvellinum í Palma tekur 45-55 mínútur.
Gamli bærinn í Alcudia er um 3 km frá ströndinni og eru elstu hlutar hans frá því um 1300. Saga bæjarins er þó enn lengri, því Grikkir og Föníkumenn settust þar að löngu fyrir Kristsburð og Rómverjar gerðu bæinn að höfuðborg Mallorca á 2. öld e.k. Enn er gengið inn í gamla bæinn um forn borgarhlið reist af Spánarkonungi.
Alcudia ströndin er aðgrunn og sjórinn hlýr, sem gerir hana sérlega hentuga fyrir börn. Sandurinn er skjannahvítur og aðbúnaður allur eins og best verður á kosið - auk þess sem stutt er í hressingu og verslanir.
ÍBÚÐAHÓTEL: Viva Blue****
ÍBÚÐAHÓTEL: Viva Tropic***
ÍBÚÐAHÓTEL: Alcudia Sun Village***
C´AN PICAFORT

Rólegur staður við enda Alcudia bæjarins með rómaðri náttúrufegurð, frábærri baðströnd og sögu sem nær tvö þúsund ár aftur í tímann. Staðsetningin er hreint frábær, fyrir miðjum Alcudia flóa, með 17 km strandlengju og þjóðgarðinn sér við hlið. Hér er náttúrufegurð mikil, falleg þorp og frábær aðstaða. Stutt til Alcudia, Formentor og Playa de Muro, auk bæjarins Santa Margarita.
Í C'an Picafort er falleg höfn , fjölbreytt afþreying og ágætt næturlíf, en svæðið hentar fyrst og fremst barnafjölskyldum. Helstu hátíðir eru 20. júlí (heilög Margrét) og glæsileg skrúðganga heilagrar Katrínar fyrsta sunnudag í september. Í verslunarhverfinu Paseo Colón er líf og fjör langt fram á kvöld.
ÍBÚÐAHÓTEL: Viva Mallorca****
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Sumarferðir bjóða uppá rútuferðir á milli flugvallar og hótels erlendis. Akstur þarf að bóka og fullgreiða áður en lagt er af stað í ferðina.
skoða Mallorca á stærra korti