Tenerife

Hotel Fanabe Costa Sur

4
TEN-Fanabe-Costa-Sur-01.jpg
Hleð hótelmynd
Færa uppFæra nipur

Hótel Fanabe Costa Sur er skemmtilegt 4 stjörnu hótel í Fanabe hverfinu á Costa Adeje hlutanum. Hótelið var allt endurnýjað árið 2004. Þetta er hótel sem leggur höfuð áherslu á góða þjónustu og mikið upp úr því að sinna fjölskyldufólki jafnt sem einstaklingum. Hótelið tilheyrir sömu hótelkeðju og hið v

UPPLIFUN

Hótel Fanabe er gott 4 stjörnu hótel á Costa Adeje strandhlutanum, vel staðsett, þar sem útimarkaðurinn á svæðinu er við hliðina á hótelinu og stutt er í verslanir þ.m.t glæsilega verslunartorgið Plaza del Duque. 250-350 m eru niður á Fanabé og Duque strendurnar, þar sem er fjöldi veitingasstaða. Hótelið kemur fólki skemmtilega á óvart, fjölbreytt sameiginleg aðstaða, góð þjónusta og þægilegt viðmót gerir dvöl á Hótel Fanabe vel þess virði að eyða sumarleyfinu sínu.


VISTARVERUR

Á hótelinu eru 413 herbergi á 4 hæðum, sem öll eru með gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólfi og minibar. Öll herbergin eru ágætlega rúmgóð (ca 25-30 fm) og snyrtileg með loftkælingu og svölum sem ýmist snúa inn í sundlaugargarðinn eða eru með útsýni til sjávar eða upp til fjalla. Í herbergjunum eru annaðhvort hjónarúm eða tvö stök rúm, lítill sófi, skrifborð og stólar. Baðherbergin eru stór og fullbúin með hárþurrku og baðkari, þar sem í er sturta.


AÐSTAÐA

Sólbaðsaðstaðan er góð við tvískipta sundlaugina ásamt barnalaug, en báðar eru upphitaðar á veturna. Við laugina eru sólbekkir og sólhlífar án endurgjalds. Tennisvöllur, boltavöllur, mini-golf og leiksvæði fyrir krakka er einnig við sundlaugarsvæðið. Á þaki hótelsins er fín aðstaða til að njóta sólarinnar og útsýnis, ásamt tveimur litlum kerlaugum. Gjafavöruverslun, blaða-og tímaritabúð og hárgreiðslustofa eru við andyri hótelsins ásamt gestamóttökunni sem að sjálfsögðu er opin allan sólarhringinn.


AFÞREYING

Fyrir þá sem vilja halda sér í formi er fjölmargt í boði því á hótelinu er tennisvöllur, boltavöllur, billjard, minigolf og diskótek. Einnig geta gestir farið í líkamsrækt/tækjasal (gegn gjaldi), og eða skellt sér í nudd og gufubað á heilsulind hótelsins.


ALLT INNIFALIÐ

Þeim sem kaupa "allt innifalið" pakkann fá morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Þeir fá einnig snarl á barnum frá kl. 10 á morgnana til 12:30. Þá er einnig innifalið kökur og kaffi frá kl. 15:00 til 18:00 og samlokur frá því að kvöldverði líkur til kl. 23:00. Þá eru öll drykkjarföng innifalin, bæði áfengir innlendir drykkir og óáfengir. "Allt innifalið" þjónustan er í boði alla daga frá kl. 07:30 til kl 23.00


VEITINGASTAÐIR

Aðalveitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður við sundlaugina þar sem ýmist er hægt að borða úti eða inni, morgun-hádegis og eða kvöldmat. Hótel Fanabé er þekkt fyrir góðan mat og fjölbreytni í matargerð. Grill og snakkbar er við sundlaugina og útikaffihús er við aðalinnganginn og gestamóttökuna, þar sem danstónlist og skemmtidagskrá er á kvöldin.


FYRIR BÖRNIN

Krakkaklúbbur og skemmtidagskrá er fyrir yngstu kynslóðina á daginn og á kvöldin er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna.

STAÐSETNING

Hótelið er mjög vel staðsett á Costa Adeje hlutanum, fjarlægð á strönd er 250 metrar og stutt er í alla þjónustu, verslanir og fjölbreytta veitingastaði. Vatnaskemmtigarður er í 1 km fjarlægð og golfvellir í 3 km frá hótelinu. 15 km frá flugvellinum og 80 km frá höfuðborginni Santa Cruz.

ÞG 10.07


  • Heimilisfang: Avenida Bruselas 13 Urb. Playa De Fanabe, Adeje, Tenerife, Spain
  • Símanúmer:

Bygging

  • Fjöldi herbergja (413)
  • Endurnýjað árið (2004)
  • Gestamóttaka (Já)
  • Hentugt fyrir fatlaða (Já)
  • Lyftur (true)

Aðstaða

  • Sauna (Já)
  • Barnalaug (Já)
  • Aðgangur að tölvu (Já)
  • Garður (Já)
  • Innisundlaug (Já)
  • Heilsulind (Já)
  • Líkamsrækt (Já)
  • Skemmtidagskrá (Já)
  • Billjarð (Já)
  • Tennisvöllur (Já)
  • Veitingastaður (Já)
  • Internet aðgangur (Já)
  • Hraðbanki á hóteli (Já)
  • Leiksvæði fyrir börn (Já)
  • Mini golf (Já)
  • Barnadagskrá (Já)
  • Bar (true)

Annað

  • Fjarlægð frá strönd (250 m)
  • Næsti golfvöllur (2 km)
  • Barnavænt (Já)

Vistarverur

  • Gervihnattasjónvarp (Já)
  • Hárþurrka (Já)
  • Loftkæling (Já)
  • Minibar (Já)
  • Sími í herbergi (Já)
  • Sjónvarp í herbergi (Já)
  • Svalir/Verönd (Já)
  • Öryggishólf (Já)
Powered by ODIN