Torba

Hotel Samara 5 stjörnu hótel staðsett í útjaðri Bodrum eða í bænum Torba sem er fyrsti bæjarhlutinn sem komið er inní þegar keyrt er frá flugvellinum inn til Bodrum. Hótelið stendur við ströndina og liggur garðurinn alveg að sjónum. Umhverfið er rólegt og hótelið í alla staði mjög þægilegt og gott fyrir fjölskyldur.

Á Samara er allt innifalið, morgun-, hádegis- og kvöldverður ásamt snarli á milli mála. Allir innlendir drykkir innifaldir.

GISTING 

Í boði eru hugguleg tvíbýli og junior svítur með svölum eða verönd. Herbergin hafa allt það helsta sem þarf í fríinu, m.a. loftkælingu, gervihnatta-sjónvarp, frítt wifi, öryggishólf og minibar.

Baðherbergin eru með sturtu , hárþurrku og hreinlætisvörur.

 

AÐSTAÐA

Fínn sundlaugagarður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu en aðeins nokkur skref eru í ströndina og er góð sólbaðsaðstaða þar. Einnig er heilsulind á hótelinu þar sem hægt er að slaka á í nuddpottinum eða í saununni nú eða taka á því í líkamsræktinni.

AFÞREYING

Mikið er um að vera á hótelinu fyrir börn og fullorðna meðal annars er fótboltavöllur, mini golf, tennisvöllur, körfuboltavöllur og strandblak. Þar sem ströndin er alveg við hótelið er líka hægt að skella sér á jet ski. bananabát og brimbretti svo eitthvað sé nefnt.

VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu er allt innifalið, morgun-, hádegis- og kvöldverður ásamt snarli á milli mála og innlendum drykkjum. Fimm barir eru á hótelinu ásamt hlaðborðsveitingastað, al la carte veitingastað og snarlbar.

FYRIR BÖRNIN 

Krakkaklúbbur og leikjaherbergi er á hótelinu ásamt ótal mörgum afþreyingum svo að það væsir ekki um börnin á Samara.

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett í útjaðri Bodrum eða í bænum Torba sem er fyrsti bæjarhlutinn sem komið er inní þegar keyrt er frá flugvellinum inn til Bodrum. Hótelið alveg við ströndina.

AÐBÚNAÐUR Á HOTEL SAMARA 

Allt innifalið

Tvíbýli / Junior svítur

Loftkæling

Sjónvarp

Wifi

Svalir eða verönd

Baðherbergi með sturtu

Hárþurrka

Hreinlætisvörur

Sundlaug

Sólbaðsaðstaða

Heilsulind

Nuddpottur

Líkamsrækt

Krakkaklúbbur

Leikjaherbergi

Sólarhringsmóttaka

 

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin. 

 

Upplýsingar

Kaynar Mevkii Torba, Bodrum Turkey

Kort