Albir Garden Resort er vel staðsett á fallegu svæði í miðbæ Albír sem er í hjarta Costa Blanca. Á hótelinu er Aquagarden Park sundlaugargarðurinn og mjög góð og eftirsótt íþróttaaðstaða fyrir hópa . Ströndin er í 15 mínútna göngufjarlægð og Benidorm er í 5 mínútna akstursfjarlægð.
GISTING
Í boði eru standard- og premium íbúðir með einu svefnherbergi, allar með svölum, loftkælingu, eldhúskrók, örbylgjuofn, hraðsuðuketil, kæliskáp, gervihnattasjónvarp og frítt Wi-Fi. Premium íbúðirnar eru með stærra svefnherbergi og eru rúmbetri. Baðherbergi eru með sturtu.
FYRIR BÖRNIN
Krakkaklúbbur, sundlaugargarður og leikvöllur. Á sumrin er skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaður, staðsettur í aðalbyggingu hótelsins, sem býður upp á hlaðborðs veitingar með úrval af Miðjarðarhafs réttum og meðlæti.
Lounge bar / Cafe er á hótelinu þar sem hægt er að njóta veiga og útsýnis yfir hótel garðinn og sundlaugina.
AÐSTAÐA
Glæsilegur sundlaugargarður Aqua garden Park er rétt hjá hótelinu. Þar er að finna, meðal annars, margar mismunandi rennibrautir allt frá 4 - 10 metra háum - frábært svæði þar sem allir aldurshópar geta fundið skemmtun við hæfi. Aðgangur er innifalinn fyrir hótelgesti.
Mjög góð og eftirsótt aðstaða er á hótelinu til íþróttaæfinga sem margir hafa og eru að nýta sér.
Heilsulind er á hótelinu sem býður upp á tyrkneskt bað, heitan pott og gufubað. Hægt er að fá nudd meðferðir gegn gjaldi. Prýðileg líkamsrækt er á hótelinu.
ATH
Upplýsingar
Camí Vell d'Altea, 29, 03581 Afaz del Pi, Alacant, Spánn
Kort