Benidorm: líf og fjör alla daga

Benidorm er við Costa Blanca strandlengjuna - flogið er til Alicante flugvallar.

Draumkenndar strendur Benidorm hafa um árabil lokkað til sín sólþyrsta Íslendinga. Svæðið iðar af lífi með sínum hvítu ströndum, glæsilegu háhýsum og fjölbreyttu matarmenningu. Á Benidorm verður fjölskyldan svo sannarlega ekki svikin um draumafríið enda er um að ræða einn þaulreyndasta áfangastað Evrópubúa. Líflegar strendur, dýragarðar, skemmtigarðar, barir ásamt gífurlegum fjölda veitingastaða og kráa. Allt þetta er að finna á Benidorm.

COSTA BLANCA SVÆÐIÐ

  • Albír
  • Alicante
  • Altea
  • Benidorm
  • Calpe

 

  • Flogið til Alicante (ALC) 
  • Flugtími +/-4 klst.
  • Akstur til Benidorm 30 mín.
  • Tungumál: Spænska
  • Gjaldmiðill: Evra 

 

  • Sumarhiti: 28+°C
  • Vetrarhiti: 16+°C
  • Milt og gott vor og haust
  • Tími: +2 sumar +1 vetur
  • Landkóði: +34 

 

Hvítar strendur við Miðjarðarhafið

Þeir sem hafa komið til Benidorm skilja af hverju staðurinn hefur verið einn vinsælasti sumarleyfisstaður Evrópubúa í næstum hundrað ár. Þar er nefnilega hægt að finna allt sem hugurinn girnist og líkaminn þarfnast, eða þarfnast ekki. Á aðra höndina kyssir Miðjarðarhafið tært og óendanlegt, hvítar strendur og á hina rísa kraftmiklir fjallgarðar. Strendur Benidorm bjóða svo bæði upp á letilíf á sólbekk með ölkrús við hönd og fjöruga afþreyingu í sjónum. Krakkarnir njóta sín á hlaupum í mjúkum sandinum og foreldrar hlaða batteríin í sólinni.

Allir finna sitt á Benidorm

Börnin elska Benidorm. Enda hefur staðurinn næstum því hundrað ára reynslu af því að skemmta ferðalöngum á öllum aldri. Dýragarðinn Terra Natura ætti enginn að láta fram hjá sér fara, þar er að finna öll dýr frumskógarins. Munið bara eftir sólarvörninni, því á Benidorm er sól nær allan ársins hring.

Heimsókn í náttúrulífsgarðinn Mundomar gleymir enginn. Garðurinn var stofnaður árið 1996 og er heimili yfir þrjátíu dýrategunda. Terra mitica er svo einn frægasti skemmtigarður heims. Garðurinn er mikil ævintýraveröld þar sem hægt er að kynnast sögu Grikklands, Egyptalands, Rómar og fleiri menningarsvæða og fara í ótal skemmtileg tæki. 

Aqualandia er stór vatnsrennibrautargarður þar sem bæði krakkar og fullorðnir skemmta sér konunglega í vatnsrennibrautum og sundlaugum. Þetta er einungis lítið brot af þeirri fjölbreyttu skemmtun sem er í boði fyrir alla aldurshópa á Benidorm.

Á ströndinni er ýmislegt hægt að finna sér til dundurs. Þar er hægt að fara á Jetsky fyrir lítinn pening, leigja hjólabáta eða svamla í heitum sjónum. Á Benidorm er líka einstaklega gaman að leigja hjól. Það kostar hvorki mikinn pening né fyrirhöfn heldur eru nokkrar hjólaleigur staðsettar meðfram strandlengjunni. Öll fjölskyldan getur leigt hjól og hjólað meðfram sjónum í hlýrri sólinni.

Næturlíf Benidorm er fyrir löngu orðið þekkt út fyrir landssteinana. Ballið byrjar rétt eftir miðnætti á flestum næturklúbbunum og er dansað fram undir morgun.

Spænskur draumur í fjöllunum

Þrátt fyrir að borgin hafi verið áfangstaður sólþyrstra ferðamanna um árabil, þarf ekki að leita langt til þess að komast í ekta spænsk þorp í fjöllunum. Einungis stuttur akstur er frá iðandi borginni í lítil fjallaþorp þar sem gaman er að eyða degi eða tveimur, ganga um, sötra öl og njóta þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða.

Þá getur líka verið gaman að heimsækja þorpin að kvöldlagi og kynnast mannlífinu þegar fer að rökkva. Ótal lítil þorp er gaman að heimsækja en við mælum sérstaklega með þessum þorpum:

Albír & Altea
Öll fjölskyldan tekur ástfóstri við hinn einstaka spænska bæ, Albir. Aðdráttarafl hans er einstakt og fegurð staðarins og sólbakað andrúmsloft heilla þá sem vilja eiga friðsælar stundir í fríinu. Í þessum vinalega bæ er að finna lítil notaleg kaffihús, veitingastaði með góðum mat, líflegar krár og verslanir.

Steinsnar frá Albír bíður Altea sem stundum er kallað hið kyrrláta athvarf listamanna. Þar eru þröngar götur og fyrsta flokks veitingastaðir sem seiða til sín ferðalanga í leit að sönnum spænskum anda. Í Altea er tilvalið að setjast niður og njóta, borða ekta spænskt tapas og kannski fá sér eins og eina Sangriu.

Frá gamla bænum í Benidorm er einungis 25 mínútna akstur til Albir. Einnig ganga strætisvagnar til Benidorm og Altea.

 

 

Gistingar á Costa Blanca svæðinu

Barcelo Asia Gardens hotel & SPA er glæsilegt 5* lúxushótel staðsett upp í furupríddum Sierra Cortina hlíðunum með stórkostlegu útsýni yfir Costa Blanca. Hótelið býður upp á fjöldann allan af sundlaugum, SPA með líkamsræktaraðstöðu, innilaug og heitum potti. 4 góðir veitingarstaðir eru á hótelinu.

Lesa meira

Gran Hótel Bali er 4ra stjörnu hótel á Costa Blanca ströndinni á Benidorm. Herbergin eru með tveimur stórum rúmum, auk sófa sem nýtist vel sem viðbótar gisting fyrir börn eða unglinga. Gran Hótel Bali leggur mikið upp úr afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
 

Lesa meira

Hótel Kaktus er mjög gott 4ra stjörnu hótel. Hótelið var opnað í júní 2003 og er á besta stað í Albir, alveg á ströndinni með miðbæ Albir og listamannabæinn Altea í seilingarfjarlægð. Fallegur garður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Á þaki hótelsins er einnig sundlaug og sólbaðsaðstaða.

Lesa meira

Hotel SH IFach er 4ra stjörnu hótel á frábærum stað í bænum Calpe á Costa Blanca

Lesa meira

Gott 4ra stjörnu hótel í Albir ca 1 km frá fallegri ströndinni í Albir og aðeins nokkra kílómetra frá Benidorm og Altea. Glæsileg heilsulind og í gróðursælum garðinum er stór sundlaug og ljómandi aðstaða til sólbaða.

Lesa meira

Hotel Madeira Centro er gott 4ra stjörnu hótel staðsett á besta stað við gamla bæinn á Benidorm og í um 5 mínútur frá Levante ströndinni. Falleg og góð gisting í hjarta Benidorm. Öll herbergin eru snyrtileg og með loftkælingu, minibar og öryggishólfi.

Lesa meira

Sandos Benidorm Suites er 4ra stjörnu gisting, staðsett í miðborg Benidorm. Gistingin býður upp á 200 rúmgóðar íbúðir og í garðinum er sundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu. Á sumrin er góð barna- og skemmtidagskrá

Lesa meira

Hotel Sandos Monaco er mjög gott 4ra stjörnu hótel staðsett u.þ.b. 450 metra frá Levante ströndinni nálægt gamla bænum á Benidorm. Góður garður og sólbaðsaðstaða.Mikil og fjölbreytt skemmtidagskrá er á hótelinu. Hótelið er eingöngu fyrir 16 ára og eldri. 

Lesa meira

Hótel Melia Alicante er frábært 4ra stjörnu hótel og er það eitt vinsælasta hótelið á Alicante. Hótelið er staðsett úti á smábátabryggjunni með Postuguet ströndina í fanginu, smábátahöfnin er frábærlega staðsett alveg í miðborginni með fjölda veitinga- og kaffihúsa í næsta nágrenni.&

Lesa meira

Hótel Rosamar er 4ra stjörnu fjölskylduvænt hótel á Benidorm, staðsett í um 10 min göngufjarlægð frá ströndinni. Á hótelinu er ALLT INNIFALIÐ, vatnsrennibrautagarður í hótelgarðinum, rúmgóð herbergi og allt sem þarf til þess að gera fríið sem best.

Lesa meira

Gran Hótel Sol y Mar Gran Spa Beach Club er fallegt 4ra stjörnu hótel staðsett við ströndina í Calpe. Hótelið og herbergin eru hönnuð í nútímalegum stíl. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Hótel Sun Palace Albir er gott 4ra stjörnu hótel staðsett u.þ.b. 1 km., frá ströndinni í Albir og rétt við Serra Celada þjóðgarðinn. Glæsilegt útsýni er frá hótelinu yfir bæinn og út á strönd. Flott heilsurækt er á hótelinu og sundlaug. 

Lesa meira

Hótel Mediterraneo er mjög gott 4ra stjörnu hótel staðsett í 900 m fjarlægð frá Levante ströndinni. Glæsilegur garður með stórum sundlaugum og mjög góðri sólbaðsaðstöðu. Barnasundlaug og leikvöllur ásamt dagskrá fyrir hressa krakka.

Lesa meira

Hótel Melia Benidorm er gott 4ra stjörnu hótel staðsett í Rincon de Loix svæðinu á Benidorm, um 900 metra frá Levante ströndinni. Vel útbúin herbergi sem öll snúa út að sundlaugargarðinum. Fjölbreytt skemmtidagskrá er á hótelinu og fjöldi veitingastaða, bara og verslana eru í næsta nágrenni. 

Lesa meira

Melia Villaitana er golfhótel staðsett 4 km frá Benidorm. Glæsilega aðstaða, tveir golfvellir sem henta kylfingum í öllum gæðaflokkum. Stærðarinnar sundlaug, góð sólbaðsaðstaða og allt til alls. 

Lesa meira

Hótel Medplaya Agir er ágætt 4ra stjörnu hótel vel staðsett um 100 m frá Levante ströndinni. Um 10 mín gangur er í gamla miðbæinn í Benidorm. Á hótelinu er heilsulind ásamt líkamsræktarsal. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Flamingo Beach Resort er 4ja stjörnu gisting staðsett í 10 mínútna göngufjarlægð frá Levante ströndinni. Nóg um að vera og góður sundlaugagarður. Hótelið er eingöngu fyrir 15 ára og eldri. 

Lesa meira

Hótel Avenida er snyrtilegt 4ra stjörnu hótel stutt frá Levante ströndinni. Fimm mínútna gangur niður á strönd en í garðinum má einnig finna útisundlaug og sólbekki. 

Lesa meira

Hótel Cap Negret er 4ra stjörnu hótel staðsett við ströndinna í um 800 metra fjarlægð frá bænum Altea. Á hótelinu er útisundlaug, sólbaðsaðstaða og fallegt útsýni yfir ströndina er úr garðinum. 

 

Lesa meira

 Hótel Benidorm Centre er 4ra stjörnu hótel staðsett í hjarta Benidorm og stutt í allt það helsta. Einungis 200 metrar á Levante ströndina. Hótelið er aðeins fyrir 18 ára og eldri. 

Lesa meira

Flamingo Oasis er 4ra stjörnu hótel staðsett í 15 mínútna gangi frá Levante ströndinni á Benidorm. Hótelið er staðsett í nýrri hluta Benidorm og er stutt í alla þjónustu. Herbergin eru rúmgóð, snyrtileg og stílhrein. 

Lesa meira

Sunconfort Aqua Azul nýlega uppgert 4ra stjörnu hótel og eitt vinsælasta hótelið í Benidorm vegna staðsetningar og góðrar þjónustu. Hótelið er aðeins 400 metrum frá strönd og örstutt frá gamla bænum. Frábær valkostur og eingöngu fyrir fullorðna. Hótel er eingöngu fyrir 16 ára og eldri.

Lesa meira

Flash Hótel er góð 4ra stjörnu gisting á besta stað á Benidorm í um 5 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni og 15-20 mínútna ganga í gamla bæninn. Nútímaleg og vel útbúin herbergi eru á hótelinu. Þetta hótel er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Hótel Helios Benidorm er 4ja stjörnu hótel staðsett um það bil 410 metrum frá Levante ströndinni og stutt frá lífinu á Benidorm. Hótelið var tekið í gegn 2017-2018 og eru herbergin einföld og rúmgóð.  Hægt er að velja um hálft fæði eða fullt fæði.

Lesa meira

Hótel Los Alamos er góð 4ra stjörnu hótelgisting staðsett á frábærum stað á Benidorm. Stutt í gamla bæinn og á ströndina. Góð og snyrtileg herbergi eru á hótelinu, búin helstu þægindum eins og sjónvarpi, öryggishólfi og síma. Snyrtileg baðherbergi og svalir á öllum herbergjum.

Lesa meira

Suitopia Sol Y Mar Suites er fínt 4* hótel í Calpe. Hótelið er staðsett á miðjusvæði Calpe og örstutt á ströndina. Gott fjölskylduhótel með leiksvæði fyrir börnin.

Lesa meira

Les Dunes Comodoro er 4ra stjörnu hótel staðsett á Levante ströndinni á Benidorm. Frá hótelinu er stutt í það allra helsta, t.d. bari og verslanir. Næsti golfvöllur er í um 10 min akstursfjarlægð.

Lesa meira

Hótel Port Alicante er 4ra stjörnu hótel, staðsett um 600 m frá ströndinni og um 5 km frá miðbæ Alicante. Fín sólbaðsaðstaða, sundlaug, vel útbúin herbergi, veitingastaður og kaffihús eru á hótelinu. 

Lesa meira

Casa Alberola Alicante Curio Collection by Hilton er 4 stjörnu hótel, mjög vel staðsett, nálægt smábátahöfninni í Alicante og Eslandade of Spain og Canalejas Park.  Santa Barbara kastalinn í 2ja km fjarlægð

Lesa meira

Hotel Bristol er smekkleg og góð 4 stjörnu gisting staðsett aðeins 150 m frá næstu strönd. Gististaðurinn hefur m.a. veitingastað, bar, góðan garð með sundlaug og sólbaðsaðstöðu svo eitthvað má nefna. Njóttu vel í sólinni á Alicante.

Lesa meira

Innside by Melia Costablanca,  áður Hotel Sol Costablanca, er fallegt 4 stjörnu hótel, staðsett nánast við Levante ströndina í miðbæ Benidorm. Útisundlaug og loftkæling er á hótelinu. Hótelið er aðeins fyrir 16 ára og eldri.

Lesa meira

Mercure Benidorm er staðsett rétt við Poniente ströndina.  Hótelið var tekið í gegn og opnaði aftur í júní 2022.  

Lesa meira

Benidorm Plaza er 4* hótel staðsett um 400 metra frá Levante strönd í hjarta miðbæjar Benidorm. Nútímalegt og notalegt með öll helstu þægindi, s.s. sundlaug, heilsurækt og góðan veitingastað.

Lesa meira

Pierre & Vacances Bahia Calpe er smekklegt og gott 4 stjörnu hótel staðsett aðeins 50 m frá Arenal Bol strönd. Gististaðurinn hefur m.a. veitingastað, bar, glæsilega sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Njóttu vel í sólinni á Calpe.

Lesa meira

Hotel Alicante Gran Sol er smekkleg 4 stjörnu gisting staðsett aðeins 350 m frá næstu strönd. Gististaðurinn hefur m.a. veitingastað og bar. Njóttu vel í sólinni á Alicante.

Lesa meira

Milords Suites íbúðargistingin er einstaklega vel staðsett í hjarta gamla bæjarins á Benidorm. Íbúðargistingin er ein af örfáum gistingum sem nær að sameina óviðjafanlega stemmingu gamla bæjarhluta Benidorm og það að vera nánast á ströndinni.

Lesa meira

Hótel Oasis Plaza er vel staðsett 3ja stjörnu hótel í gamla bænum á Benidorm, rétt fyrir ofan Poniente ströndina í Marina Baja hverfinu um 350 m frá Ponienteströndinni. Á hótelinu er bar og veitingastaður.

Lesa meira

Gala Palacida er einfalt, huggulegt og nýlega uppgert 3 stjörnu hótel rétt við Levante ströndina. Notalegur sundlaugagarður með ágætis sólbaðsaðstöðu. 

Lesa meira

Hótel Dynastic er gott 3ja stjörnu hótel staðsett u.þ.b. 500 metra frá Levante ströndinni á Rincón de Loix svæðinu. Fjöldi veitingahúsa, skemmtistaða og verslana eru í næsta nágrenni. 

Lesa meira

Albir Garden Resort er staðsett á fallegu svæði í miðbæ Albír. Aqua garden Park sundlaugargarðurinn er rétt hjá hótelinu og frír aðgangur fyrir hótelgesti. 

Lesa meira

Sol Pelicanos er staðsett á fínum stað á Levante ströndinni í Rincon de Loix hverfinu aðeins 300 metra frá ströndinni.

Lesa meira

Hótel Maya er gott 3ja stjörnu hótel staðsett stutt frá mörgum áhugaverðum stöðum svo sem Santa Barbara kastalanum, listasafni og Plaza Mar verslunarmiðstöðinni og um 750 metra frá ströndinni. Snyrtilegur sundlaugagarður og líkamsræktarstöð. 

Lesa meira

Prince Park er 3ja stjörnu hótel staðsett í um 800 metrum frá gamla bænum á Benidorm. Snyrtileg og björt herbergi og góður garður með sólbaðsaðstöðu og útisundlaug. Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð og bar. 

Lesa meira

Hótel Alone er tilvalinn áfangastaður til að njóta sólarinnar og strönd með maka, vinum eða fjölskyldu. Á hótelinu er sundlaug, veitingastaður, úrval skemmtunar og góð sólbaðsaðstaða.
Það er staðsett 500 metra frá ströndinni og 2 km frá Benidorm. 

Lesa meira

Medplaya Regente er gott 3 stjörnu hótel miðsvæðis á Benidorm. Stutt er á Levante ströndina. Í garðinum er  góð sundlaug og sólbaðsaðstaða fyrir gesti. Frábær kostur í sólinni á Benidorm.

Lesa meira

Roca Esmeralda er gott 3ja stjörnu hótel staðsett í um 2ja mínútna göngufjarlægð frá dásamlegri ströndinni í Calpe. Herbergi hótelsins eru einföld, en snyrtileg, búin öllum helstu þægindum til þess að gera dvölina sem notalegasta. Í garðinum er tvískipt sundlaug og nóg er um að vera fyrir alla. 

Lesa meira

Mont Park hótelið er einföld 3 stjörnu gisting staðsett við enda Levante strandarinnar. Stuttur gangur er á ströndina. Ekki mikið um að vera fyrir börn - en stutt er á ströndina eða um 150 metrar.

Lesa meira

Hótel Poseidon Resort er prýðilegt 3ja stjörnu hótel staðsett rétt við Levante ströndina. Það er auðvelt að njóta sín hvort sem það er á ströndinni, í sundlaugunum tveimur sem eru í garðinum eða bara í garðinum sjálfum.

Lesa meira

Poseidon Playa er einföld 3ja stjörnu gisting sem er í göngufæri við ströndina. Öll herbergin snúa að Miðjarðarhafinu, svo hægt er að fara í sólbað á svölunum, við sundlaugina eða á ströndinni.
Á hótelinu er m.a. hlaðborðsveitingastaður, bar, skemmtidagskrá og barnaklúbbur. 

Lesa meira

Hotel Primavera Park er 3 stjörnu hótel staðsett á Benidorm, Spáni. Hótelið er staðsett í aðeins 450 m fjarlægð frá Levante ströndinni. 2 sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða bjóða gesti velkomna til að njóta slökunar og veðurs á Benidorm.

Lesa meira

Medplaya Hotel Riudor er gott 4 stjörnu hótel staðsett aðeins 200 m frá Levante strönd.Sundlaug, veitingastaður, bar og skemmtidagskrá veita gestum góða dvöl á Benidorm. Aðeins 18 ára og eldri.

Lesa meira

One Apartments er vel staðsett 3 stjörnu íbúðarhótel aðeins 300 m frá Levante strönd. Góð sundlaug og sólbaðsaðstaða taka á móti þér í garði hótelsins. Njóttu vel í sólinni á Benidorm. 

Lesa meira

Apartmentos Halley er gott íbúðahótel staðsett á Benidorm. Hótelið er 17 hæðir og eru 4 íbúðir á hverri hæð, 2 lyftur. Garður er fyrir framan húsið með 2 sundlaugum og sólbaðsaðstöðu.

Lesa meira

Buenos Aires er 2ja stjörnu íbúðagisting á Benidorm staðsett í um 10 -15 min göngu fjarlægð frá Levante ströndinni. Fínn valkostur fyrir fjölskyldur, íbúðir með tveimur svefnherbergjum.

Lesa meira

Maryciel er gott 2 stjörnu íbúðarhótel staðsett á Benidorm. Hótelið er vel staðsett og situr í aðeins 250 m frá Levante strönd. Sundlaug og góð sólbaðsaðstaða eru á gististaðnum fyrir gesti. 

Lesa meira

El Faro Apartments er notalegt 2 stjörnu íbúðarhótel aðeins 100 m frá Poniente ströndinni. Sundlaug, sólbaðsaðstaða, bar og líkamsrækt eru m.a. á hótelinu. Njóttu vel á Benidorm.

Lesa meira