Gran Canaria: staður fyrir alla í fjölskyldunni

Gran Canaria er þriðja stærsta eyjan í Kanarí-eyjaklasanum og hefur um áratugaskeið verið langvinsælasti áfangastaður sólþyrstra Íslendinga. Sumarferðir bjóða upp á fjölbreytta þjónustu og gistimöguleika á Kanarí þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á verði við hæfi. 

Kanarí er best fyrir:

  • Einstakar fallegar strendur
  • Hagstætt verðlag
  • Fjölbreytta gistimöguleika
  • Fjölskylduvænt umhverfi

 

  • Flogið til Las Palmas (LPA) 
  • Flugtími +/-5-6 klst.
  • Tungumál: Spænska
  • Gjaldmiðill: Evra

 

  • Sumarhiti: 28+°C
  • Vetrarhiti: 18+°C
  • Milt og gott vor og haust
  • Tími: +1 sumar, sami vetur
  • Landkóði: +34 

 

Draumaeyjan í Atlantshafi

Á Gran Canaria njóta börnin sín í botn undir mildri sólinni en veðurfar er jafnt á eynni nánast allt árið um kring. Því er hægt að svamla í sundlauginni í janúar jafnt og í júlí. Gran Canaria er þriðja stærsta í eyjan í Kanarí-eyjaklasanum og hefur um áratuga skeið verið lang vinsælasti áfangastaður sólþyrstra Íslendinga á faraldsfæti. Það er ekki að ástæðulausu að eyjan er einn vinsælasti áfangastaðurinn okkar, heldur er það vegna þess að þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem þú vilt busla í sundlauginni með krökkunum í fjörugum leik, slaka á á sundlaugarbakkanum, fara á ströndina eða á mini-diskó, það er allt hægt á Kanarí.

Hagstætt verðlag og verslun

Kanarí er stundum líkt við fríhöfn þar sem verðlag er fremur hagstætt, sérstaklega á merkjavöru af öllu tagi og hvers konar skarti. Þar er til dæmis hagsætt að versla úr, skartgripi, myndavélar, hljómtæki og rafmagnsvörur. Þar er líka að finna ótal götusala sem selja allt það glingur sem hugurinn girnist. Reglulega eru settir upp götumarkaðir þar sem hægt er að grafa fram ýmislegt glingur og gersemar. Á mörkuðum og hjá götusölum er um að gera að prútta um verðið, enda viðtekin venja og besta skemmtun.

Suðræn stemning ræður ríkjum á Kanarí og eru dagarnir tilvaldir í hverskyns letilíf. En þegar rökkva tekur lifna skemmtistaðir og diskótek við þar sem dansað er inn í nóttina. Einnig má finna ótal krár og bari þar sem gaman er að setjast inn á kvöldin með einn kaldan og horfa á Elvis Presley eða Dolly Parton öðlast nýtt líf. Fjölda frábærra veitingahúsa er líka að finna á Kanarí þar sem allir í fjölskyldunni finna eitthvað við sitt hæfi. Hagstætt verðlag er á eynni og matur og drykkur því á góðu verði. 

 

 

Við bjóðum upp á spennandi gistimöguleika þannig að allir ættu að geta fundið hótelherbergi eða íbúðir sem henta. Skapaðu minningar með okkur á Kanarí, fjölskyldan sér ekki eftir því. Krakkaklúbbarnir á Kanarí eru frábærir! 

Fjölbreyttir gistimöguleikar

Á daginn ræður suðræn stemning ríkjum á Kanarí sem er tilvalið í hverskyns letilíf en á næturnar má finna iðandi næturlíf. Þar er að finna ótal krár og bari og óviðjafnanlegt er að sitja á kvöldin með einn kaldan og horfa á Elvis Presley eða Dolly Parton fá nýtt líf og skemmta allri fjölskyldunni. Fjölda frábærra veitingahúsa er líka að finna á Kanarí þar sem allir í fjölskyldunni finna eitthvað við sitt hæfi.

Hagstætt verðlag er á eynni og matur og drykkur því á góðu verði. Við bjóðum upp á spennandi gistimöguleika þannig allir ættu að geta fundið herbergi, íbúðir eða hús sem henta hverjum og einum. Fjölskyldan ætti því ekki að sjá eftir ferð til Kanarí.

Enska ströndin

Flestir hafa heyrt um Ensku ströndina á Kanaríeyjum, eða Playa de Ingles sem Íslendingar hafa sótt í fjölda ára. Nafnið á bæði við um ströndina og bæinn sjálfan. Ströndin teygir sig til San Augustin í austri og Maspalomas í vestri. Þar er fjörugasta mannlífið, fjöldi góðra gististaða, þjónusta og skemmtun í göngufjarlægð. Þar er líka að finna stærstu verslunarmiðstöðvar eyjunnar: Yumbo, Cita og Kasbah með fjölda verslana, veitinga- og skemmtistaða. En Yumbo verslunarmiðstöðin lifnar við þegar fer að myrkva og þangað sækja ótal skemmtanaþyrstir ferðalangar og fá sér einn írskan bjór eða litríkan kokteil. Góð aðstaða til gönguferða og hlaup eru við vitann í Maspalomas. Enska ströndin hentar vel fyrir fjölskyldur og pör sem vilja njóta líflegrar stemningar í sólarfríinu og hyggjast halda sig þar sem alltaf er líf og fjör.

Maspalomas

Maspalomas ströndin er rólegri, þar er umhverfið töfrandi með fögrum görðum og rólegri stemningu. Þar er mesta úrvalið af smáhýsum og hinn þekkti Faro viti sem lengi hefur verið táknmynd Kanaríeyja. Þar er að finna verslunarmiðstöðina Faro II, 18 holu golfvöll og vatnsrennibrautargarð. Í Maspalomas er líka fjöldi fyrsta flokks veitingahúsa og fjölbreytt mannlífið heillar jafnt að nóttu sem degi.

 
Las Palmas - Höfuðborg Gran Canaria

Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og um leið Austurhéraðs Kanaríeyja. Í Las Palmas býr um helmingur allra íbúa Austurhéraðs. Í borginni er fjölbreytilegt menningar- og mannlíf jafnt að nóttu sem degi, sérstaklega í gamla borgarhlutanum. Kaffihús eru þar á hverju strái, sem og einstök flóra veitingastaða og öldurhúsa þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Við mælum sérstaklega með dagsferð til þessarar skemmtilegu, líflegu borgar þar sem gaman er að skoða mannlífið, smakka alvöru spænskan mat og njóta lífsins.

 

 Puerto Rico - smábátahöfn

Puerto Rico er afar sjarmerandi og fallegur bær á suðvesturhluta eyjunnar Gran Canaria. Bærinn hefur byggst að mestu leyti upp í kringum smábáthafnirnar en í dag eru þær tvær og við aðra þeirra er að finna ströndina Playa de Puerto Rico. Þar eru fallegir veitingastaðir við sjóinn og góð sólbaðsaðstaða við himinblátt hafið. Bærinn hefur byggst upp í kringum tvær víkur eða tvo dali og rísa hæðirnar í kring tignarlegar yfir svæðið.

Í dalbotninum er að finna skemmtilegt svæði með verslunum, verslunarmiðstöðum, veitingastöðum og leiksvæðið „Angry  Bird´s“ sem hentar vel fyrir ungu kynslóðina. Rétt utan við bæinn er svo hin nýja og fagra strönd Playa de Amadores þar sem hægt er að sóla sig allan daginn á  hvítum sandi. Fagurblár sjór, veitingastaðir og verslanir eru við ströndina og einnig Amadores Beach Club sem býður uppá bekki og veitingar í fallegu  umhverfi. Puerto Rico státar af einu besta loftslagi sem fyrir finnst á öllum Kanaríeyjunum, allt árið um kring. Við mælum sérstaklega með því að fólk leigi sér bíl og keyri meðfram strandlengjunni eða taki stræisvagnana sem ganga á milli allra bæjanna  á suðurhlutanum, því stutt er yfir til Puerti Mogan og Playa del Ingles svæðanna.  

Við erum með 5 ólíkar gistingar í boði á þessu skemmtilega svæði. Við  smábátahöfnina er að finna ótrúlega falleg íbúðarhótel sem hafa allt til alls og henta fólki sem kýs meiri „lúxus“ og vill vera miðsvæðis.

Fyrir þá sem þora og geta erum við einnig með gistingar í hlíðunum fyrir ofan svæðið en þaðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir bæinn, smábátahöfnina og Atlantshafið. Þessar gistingar henta ekki þeim sem eiga erfitt með gang. Til að  komast niður í bæinn er hægt að taka leigubíl, ferðin tekur ca. 5 mínútur og kostar um 5 evrur hvor leið.

 

Puerto de Mogan - „Litlu Feneyjar“

Einn af fallegustu bæjum eyjunnar er Puerto de Mogan, sem er staðsett á suðvesturhluta Gran Canaria. Puerto de Mogan er stundum kallað litlu Feneyjar sem er nafn með rentu þar sem hafnarsvæðið er allt byggt upp í kringum lítil síki með fallegum veitingastöðum og skemmtilegum gönguleiðum milli húsa. Þessi einstaki hafnarbær býr yfir ótrúlega fallegu og róandi andrúmslofti sem fær mann algjörlega til þess að slaka á, njóta og hvílast. Falleg strönd er við höfnina með veitingastöðum og börum og þar fyrir ofan eru verslanir og útivistarsvæði.

Gistingarnar okkar á svæðinu eru glæsilegar og hannaðar til að gefa fólki tækifæri á að slaka á og njóta hverrar sekúndu í fallegum vistarverum  og görðum sem umlykja hótelin. Þetta svæði hentar öllum, sem vilja lúxus og endurnæringu á líkama og sál.

   

Gistingar á Kanarí / Gran Canaria

Lopesan Villa del Conde er frábært 5 stjörnu lúxushótel með vel útbúnum herbergjum og svítum á góðum stað rétt við ströndina á Meloneras. Hótel fyrir hjón, pör og barnafjölskyldur. Skemmtidagskrá, barnadagskrá, fimm sundlaugar og heilsulind. Frábært hótel fyrir þá sem vilja alvöru lúxus.

Lesa meira

Lopesan Costa Meloneras er einstaklega glæsilegt 5 stjörnu hótel í fallegu umhverfi við Meloneras ströndina. Hótelið var allt endurhannað árið 2021. Við hótelið er gróðursæll garður með úrval sundlauga og barnalaug. 

Lesa meira

Hotel Faro, Lobesan Collection hotel, er 5 stjörnu hótel staðsett við sjávarsíðuna og við hliðina á  Faro de Maspalomas vitanum. Hótelið er allt nýuppgert á glæsilegan hátt og meðal nýjunga er The Blue Marlin Sky Lounge Gran Canaria sem er á þaki hótelsins, hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Lopesan Baobab Resort er glæsilegt 5 stjörnu lúxushótel á frábærum stað á Meloneras svæðinu, skammt frá vitanum Faro de Maspalomas. Skemmtilega hannaður garður með 7 sundlaugum, barnalaug. Skemmtidagskrá og barnaklúbbur, þrír veitingastaðir og fjórir barir.

Lesa meira

Sheraton Salobre Golf Resort er flott 5 stjörnu hótel staðsett sunnan á Kanarí. Tveir 18-holu golfvellir eru nálægt hótelinu. Maspalomas ströndin er í 5 km fjarlægð frá hótelinu en boðið er uppá ókeypis skutluþjónustu fyrir gesti.

Lesa meira

Hotel Seaside Palm Beach er gott 5 stjörnu hótel staðsett 100 metrum frá Maspalomas ströndinn. Barnalaug og sundlaug í garðinum ásamt góðri sólbaðsaðstöðu. Afþreying fyrir börn og fullorðna og lifandi tónlist. 

Lesa meira

Hótel Riu Palace Oasis er fínt 5 stjörnu hótel. Auðvelt er að njóta þægindanna á hótelinu en þar er veitingastaður, sundlaug, barnalaug, leiksvæði, heilsulind og fleira.  

Lesa meira

Cordial Santa Agueda er glæsilegt 5 stjörnu íbúðarhótel staðsett aðeins 400 m frá Playa Santa Agueda strönd á Kanarí. 2 sundlaugar, barnalaug, heilsulind, líkamsrækt, 4 veitingastaðir og bar eru meðal þess sem Cordial Santa Agueda hefur uppá að bjóða. Njótu vel á Kanarí.

Lesa meira

Cordial Mogán Playa er stórglæsilegt 4ra stjörnuhótel í hjarta litríka smábæjarins Puerto de Mogán, aðeins 5-10 mínútur frá ströndinni og höfninni. Fallegur garður með sundlaug og barnalaug ásamt gerviströnd. Á hótelinu er veitingastaður með Michelin stjörnu. 

Lesa meira

Maspalomas Resort by Dunas er skemmtileg og fjölskylduvæn 4ra stjörnu smáhýsi og má finna ýmislegt í boði fyrir alla aldurshópa. Flottur sundlaugargarður, krakkaklúbbur, ýmis konar íþróttaiðkun, heilsulind og svo má lengi telja. 

Lesa meira

Barbacan Sol er 4ra stjörnu íbúðargisting og smáhýsi og er einn vinsælasti gististaður okkar til margra ára. Gisting eins og hún gerist best á Kanaríeyjum, á góðum stað á Ensku ströndinni, með mjög góðri aðstöðu og þjónustu. Góður garður með sundlaug og barnalaug. Frábær gisting fyrir alla!

Lesa meira

Abora Catarina by Lopesan Hotels er 4ra stjörnu fjölskyldu hótel vel staðsett á Ensku ströndinni. Einstaklega fallegur garður með hitabeltisgróðri, tvær sundlaugar ásamt barnalaug, skemmtidagskrá, afslappandi og þægilegt andrúmsloft. 

Lesa meira

Abora Buenaventura er ný uppgert og mjög þægilegt 4ra stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Góð þjónusta og mikil skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna. Stutt er í alla þjónustu. 

Lesa meira

Corallium Dunamar by Lopesan Hotels er gott 4ra stjörnu hótel á besta stað á Ensku ströndinni. Góður, gróðursæll garður, úrval bara og veitinga, sundlaug sem snýr að sjónum og margt fleira. 

Lesa meira

Hotel Gran Canaria Princess er gott 4ra stjörnu hótel sem er aðeins fyrir fullorðna. Hótelið er staðsett á Ensku ströndinni.. Góður sundlaugargarður með tveim sundlaugum og sólbaðsaðstöðu með bekkjum og sólhlífum. Hótelið er aðeins fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Maspalomas Princess er glæsilegt 4ra stjörnu hótel staðsett um 3 km frá Ensku ströndinni, milli Ensku strandarinnar og Meloneras. Stór og góður sundlaugagarður í suðrænum stíl er við hótelið með góðri sólbaðsaðstöðu með mikið af bekkjum.

Lesa meira

Bull Vital Suites er frábær 4ra stjörnu gisting rétt hjá Maspalomas Golf golfvellinum á Kanarí og er því tilvalið fyrir þá sem vilja spila golf. Góður garður með sundlaug og barnalaug auk Bali-rúma til þess að slaka á í. Glæsilegar junior svítur sem samanstanda af svefnherbergi og stofu. 

Lesa meira

DON GREGORY by Dunas er 4ra stjörnu hótel alveg við ströndina Las Burras - San Augustin. Verslanir, veitingahús og barir í næsta nágrenni. Góð sólbaðsaðstaða og sundlaug í garðinum. Hótelið er einungis fyrir 16 ára og eldri.

Lesa meira

SUITES & VILLAS by Dunas er frábært 4ra stjörnu hótel er staðsett við sandöldurnar í Maspalomas og um kílómetra frá ströndinni. Stór og góður sundlaugagarður þar sem m.a. er barnalaug. Skemmtidagskrá og krakkaklúbbur!

Mjög gott hótel fyrir alla fjölskyldufólk

Lesa meira

Hotel Reina Isabel er mjög gott 4ra stjörnu hótel staðsett við Las Canteras ströndina í Las Palmas. Á þaki hótelsins er sundlaug og sólbaðsaðstaða með fallegu útsýni yfir hafið. Góð heilsulind og líkamsræktarstöð. 

Lesa meira

Hotel Seaside Sandy Beach er 4ra stjörnu gisting staðsett miðsvæðis á Ensku ströndinni. Fallegur garður með hringlaga sundlaug og sólbekkjum. Aðeins 500 metrar eru að ströndinni og er innan við 10 mín ganga að Yumbo verslunarmiðstöðinni

Lesa meira

Taurito Princess er gott og fjölskylduvænt 4ra stjörnu hótel staðsett í dalnum Taurito, stutt frá ströndinni. Á hótelinu eru þrjár sundlaugar, þar af ein barnalaug og í garðunum er að finna leikvöll og sundlaugarbar. Gott hótel fyrir fjölskyldur og ung pör. 

Lesa meira

Mogan Princess & Beach Club er gott 4ra stjörnu hótel staðsett í hlíðum Taurito. Á hótelinu er sundlaug og barnalaug. Kvöldskemmtun er öll kvöld og barnaklúbbur fyrir yngri gestina. Rúta fer reglulega niður á strönd. 

Lesa meira

Hótel Labranda Marieta er gott 4ra stjörnu hótel sem er vel staðsett á Ensku ströndinni, Playa del Ingles og er í aðeins um 200 metra frá ströndinni. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

 

Lesa meira

Servatur Playa Bonita er 4ra stjörnu hótel staðsett á Ensku ströndinni um 450 metra frá ströndinni. Fínn sundlaugagarður með sólbaðsaðstöðu, sundlaugabar, veitingastað og leikvelli fyrir börnin. Fjölskylduvænt hótel og allt innifalið

Lesa meira

Hótel Riu Palace Maspalomas er fallegt og nýuppgert 4ra stjörnu hótel umkringt fallegum grónum garði og  staðsett við sandhólana. Hótel fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Design Plus Bex er nýtt 4ra stjörnu hótel opnað i febrúar 2018. Hótelið er staðsett í hjarta Las Palmas þar sem stutt er í allt það helst, s.s. verslunarmiðstöðvar, söfn og strendur. Hótelið er einnig tilvalið fyrir viðskiptaferðir.

Lesa meira

Hótel Riu Gran Canaria er flott 4 stjörnu hótel í Maspalomas. Hugguleg herbergi, flottur garður með frábæru útsýni og góðri sólbaðsaðstöðu.  Á hótelinu er ALLT INNIFALIÐ

Lesa meira

Hótel Riu Palace Palmeras er mjög gott 4 stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Herbergin eru rúmgóð með öllu því helsta. Úrval afþreyingar á hóteli og í kringum hótelið. Á hótelinu er allt innifalið.

Lesa meira

Servatur Waikiki er nýuppgert og fallegt 4 stjörnu fjölskylduhótel á Ensku ströndinni.
Í boði er gisting með allt innifalið.  Herbergin eru björt, nútímaleg, loftkæld með útsýni yfir ensku ströndina eða sundlaugina.  Á hótelinu er  mjög góð aðstaða fyrir börn.

Lesa meira

Labranda Costa Mogán er glæsilegt 4 stjörnu hótel staðsett við strönd á rólegu svæði á suðurhluta Gran Canaria. Þetta nútímalega og vel hannaða hótel hefur óviðjafnanlegt útsýni yfir Atlantshafið sem veitir gestum glæsilega sólarupprás og sólsetur daglega.

Lesa meira

Er flott 4 stjörnu hótel, staðsett á Playa del Cura-ströndinni. Á hótelinu eru 2 sundlaugar, ásamt barnalaug. 

 

Lesa meira

Akeah Broncemar er gott 4 stjörnu hótel aðeins 450 m frá Ensku ströndinni á Kanarí. Á hótelinu er veitingastaður, góð sundlaug og bar. Njóttu vel á Kanarí. 

Lesa meira

Cordial Green Golf eru góð 3ja stjörnu smáhýsi staðsett rétt við golfvöllinn á Maspalomas. Húsin eru 250 talsins og eru öll á tveimur hæðum. Í garðinum er sundlaug og barnalaug ásamt leikvelli. Frí skutla er niður á ströndina og á Ensku ströndina. 

Lesa meira

Cordial Mogán Valle er gott 3ja stjörnu fjölskylduvænt íbúðahótel í hinum fallega strandbæ Puerto de Mogán. Hótelið er í dæmigerðum kanarískum byggingastíl, í tveimur byggingum með gestamóttöku í miðjunni. Við hótelið er tennisvöllur, tækjasalur og heilsulind. 

Lesa meira

Servatur Don Miguel er gott 3ja stjörnu hótel, vel staðsett á Ensku ströndinni.  Skemmtidagskrá, góður garður með sundlaug sem upphituð er yfir vetrarmánuðina. Þetta hótel er einungis fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Mirador Maspalomas er gott og snyrtilegt hótel á friðsælum stað ofarlega á Maspalomas svæðinu við Sonnenland. Stór og góður garður með sundlaug, barnalaug og leiksvæði fyrir börnin. Frábær kostur fyrir fjölskyldur.

Lesa meira

Vel staðsett 3ja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Mikið um að vera í garðinum á daginn fyrir gesti á öllum aldri. Stutt í verslanir, veitingastaði og bari. Hægt að velja um hálft fæði eða allt innifalið. 

Lesa meira

Bungalows Parque Cristobal er mjög falleg 3ra stjörnu gisting sem býður upp á smáhýsi í hjarta Ensku strandarinnar. Svæðið er frábært fyrir barnafjölskyldur. Hótelið er nánast allt nýuppgert. Öll gistirými með loftkælingu. Superior Svíta og Superior Svíta Emblem eru ekki með eldhúsi.

Lesa meira

Abora Interclub Atlantic er 3ja stjörnu hótel staðsett upp á hæð í bænum San Augustin, stutt frá Ensku ströndinni. Hótelið  býður upp á barnaklúbb og skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna, góðan sundlaugagarð með sólbekkjum og góðri aðstöðu til sólbaða.  

Lesa meira

Smáhýsin Biarritz eru mjög fín smáhýsi staðsett á Ensku ströndinni rétt hjá Yumbo, Cita og Sandia. Staðsetningin er frábær í hjarta Ensku strandarinnar og stutt í alla þjónustu, verslunarmiðstöðvar og ströndina. Útisundlaug og leikvöllur. 

Lesa meira

Hotel Bull Escorial & Spa er 3ja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Hótelið staðsett nálægt ströndinni. Gróðursæll garður með sundlaug og barnalaug.

Lesa meira

Hotel Abora Continental,  IFA Continental  er gott 3ja stjörnu hótel nálægt Ensku ströndinni, stutt frá iðandi mannlífinu og ströndinni. Í garðinum er góð sundlaug og leikvöllur fyrir börnin. 

Lesa meira

Dorado Beach er 3ja stjörnu gisting, staðsett alveg við sjávarsíðuna í bænum Arguineguín á suðurhluta Gran Canaria. 15 mínútna akstur er niður á Ensku ströndina, Playa del Inglés svæðið.

Lesa meira

Caybeach Meloneras er 3ja stjörnu íbúðahótel staðsett á Meloneras Maspalomas, 300 metra frá Las Mujeres ströndinni. Góð gisting fyrir fjölskyldur. Í nágrenni hótels má finna strendur, verslanir veitingahús og golfvelli.

Lesa meira

Corona Blanca er ein eftirsóttasta íbúðargisting Íslendinga undanfarin ár, enda á frábærum stað við Kasbah-torgið á Ensku ströndinni. Á gististaðnum er góð þjónusta, rómaður veitingastaður í byggingunni og kaffihús, fallegur sundlaugargarður og í næsta nágrenni eru verslanir og ströndin innan seilingar

Lesa meira

Vel staðsett íbúðagisting á Ensku ströndinni. Fjölmargar verslanir, veitingastaðir og barir eru í næsta nágrenni. Einföld gisting, íbúðirnar eru rúmgóðar með einu eða tveimur svefnherbergjum.

Lesa meira

Jardin del Atlantico er einfalt 2ja stjörnu íbúðahótel staðsett um 200 m frá ströndinni og rétt hjá Kasbah. Snyrtilegar og ágætlega búnar íbúðir.  

Lesa meira

Rúmgóðar stúdíóíbúðir á líflegu svæði á Ensku ströndinni, skammt frá verslunarmiðstöðvunum Metro og Kasbah og fjölda veitingahúsa. Aðeins 250 metrar eru á ströndina.

Lesa meira

Íbúðahótelið Dorotea er vel staðsett í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá ströndinni og í næsta nágrenni við bari og verslanir. Einfaldar íbúðir með tveimur svefnherbergjum og fullbúnum eldhúskrók. Upphituð sundlaug og sólbaðsaðstaða.

Lesa meira

Stúdíóíbúðir rétt við ströndina á Playa del Ingles.  Í göngufæri við helstu verslanir og veitingastaði svo sem Yumbo Center og Cita. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Lesa meira

Don Diego er fín 2ja stjörnu íbúðagisting á Ensku ströndinni. Einfaldar, snyrtilegar íbúðir og góður garður með sundlaug. 15 mínútna gangur í Yumbo Center og stutt er á ströndina. 

Lesa meira