Calpe: draumur fjölskyldunnar
Calpe, er svo sannarlega perla Costa Blanca strandarinnar. Svæðið er þekkt fyrir sinn hvíta sand og túrkísblátt hafið. Svæðið er í um 50 mínútna akstursfarlægð frá Alicante borginni og því tilvalið að nýta tækifærið og heimsækja þessa frægu borg. Svæðið sjálft býður upp á sérstaklega góða gistimöguleika fyrir fjölskylduna á góðu verði. Ásamt góðum gistingum eingöngu fyrir 18 ára og eldri.
Bærinn sjálfur á sér langa og merkilega sögu sem speglast í fallegum mannvirkjum og fjölbreyttri menningunni. Menning, slökun, mikil matar- og vínmenning í dásamlegri veðursældinni.
COSTA BLANCA SVÆÐIÐ
- Albír
- Alicante
- Altea
- Benidorm
- Calpe
- Flogið til Alicante (ALC)
- Flugtími +/-4 klst.
- Akstur til Calpe 50-60 mín.
- Tungumál: Spænska
- Gjaldmiðill: Evra
- Sumarhiti: 28+°C
- Vetrarhiti: 16+°C
- Milt og gott vor og haust
- Tími: +2 sumar +1 vetur
- Landkóði: +34



Ljúft athvarf fjölskyldunnar
Á Calpe svæðinu eru ótal góðir veitingastaðir, en við mælum sérstaklega með veitingastöðum sem sérhæfa sig í sjávarfangi. Það er þó auðvelt að finna veitingahús sem bjóða upp á kosti sem hæfa matvöndu smáfólki, þannig allir fá eitthvað við sitt hæfi.
Inni í bænum, stutt frá sjónum er grunnt vatn sem nefnist Las Salias og þar má gjarnan sjá Flamingo fugla í þyrpingum. Yfir svæðinu trónir svo Penón de Ifach kletturinn sem býður upp á stórkostlegar gönguleiðir sem öll fjölskyldan nýtur sín í. Ekki gleyma myndavélinni, þar er stórbrotið útsýni yfir hafið og nærliggjandi svæði sem vel er þess virði að festa á filmu.
Lifandi borg í seilingarfarlægð
Hin víðfræga spænska borgin Alicante er í seilingarfjarlægð frá Calpe, einungis klukkustunda akstur í gegnum stórbrotið landslagið. Strandlegjan við borgina er yfir 7 kílómetrar og þar er að finna frábæra skemmtigarða og gómsæt veitingahús á hverju strái.
Í borginni er svo að finna fjölda áhuaverðra safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Þar er líka hægt að skoða margar fallegar minjar frá tímum máranna. Dómkirkjan í Alicante, San Nicolas er mjög falleg og alveg þess virði að taka sér hlé frá sólbökun einn eftirmiðdag og leggja leið síðan þangað á meðan dvölinni stendur. Næturlífið á Alicante hefur fyrir löngu orðið þekkt út fyrir landssteinanna og ferðalangar geta valið á milli aragrúa næturklúbba, kráa og skemmtistaða af öllum stærðargráðum. Það er því tilvalið að okkar mati að njóta lífsins í Calpe og eyða svo degi, eða tveimur í hinni iðandi borg Alicante eða smábæjunum í kring.
Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, farangur, gisting, íslensk fararstjórn og 24/7 þjónustusími.
Boðið uppá fjölbreyttar skoðunarferðir með fararstjóra. Akstur til og frá flugvelli er valkvæð þjónusta.



Gistingar á Costa Blanca svæðinu

Hótel SH Villa Gadea er snyrtileg og góð 5 stjörnu gisting staðsett rétt fyrir utan Altea. Falleg náttúra, útsýni og rólegheit einkenna þetta svæði og gistinguna sjálfa. Fallegt og vel hannað 5 stjörnu hótel í rólegu umhverfi. ATH að hótelið verður lokað frá 18. nóvember til 5. desember vegna viðhalds.

Albir Garden Resort er nýlega uppgert að hluta til (Premium herbergin uppgerð ), með rúmgóðum og snyrtilegum íbúðum. Albir Garden Resort er staðsett í Albir og er 15-20 mínútna ganga niður á ströndina.
Stór garður, opin svæði, leiksvæði, sundlaugagarður, Spa, veitingastaður sem býður uppá hlaðborð með

Magic Robin Hood er 3ja stjörnu skemmtilegt og nýlegt fjölskylduhótel staðsett við gamla veginn á milli Benidorm og Albir. Vatnsrennibrautagarður og fjölskylduvænt hótel. Herbergin eru í litlum smáhýsum, notaleg og með skemmtilegum innréttingum, fallega hönnuð og rúmgóð. Allt svæðið er í ævintýrastíl.

Paraiso Centro er snyrtilegt, einfalt og mjög vel staðsett íbúðagisting stutt frá gamla bænum í Benidorm. Einfaldar, snyrtilegar og rúmgóðar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baði, stofu og svölum sem snúa út í garð. Stutt er í alla þjónustu, t.d. matvörumarkaðinn Mercadona, banka og verslanir.