Benidorm

Prince Park er gott 3 stjörnu hótel staðsett um 800 metra frá gamla bænum á Benidorm. Í nágrenni við hótelið eru verslanir og barir. Levante ströndin er í um 20 mín göngufjarlægð frá hótelinu. Lítill garður með sólbaðssaðstöðu og sundlaug er við hótelið.

GISTING

Einföld og snyrtileg tvíbýli með björtum innréttingum og flísalögðu gólfi. Öll herbergin eru búin gervihnattasjónvarpi, ísskáp og öryggishólfi. Á baðherbergjum er hárþurrka. Herbergin á Prince Park eru loftkæld. 

AÐSTAÐA 

Lítill en góður garður með sólbaðsaðstöðu og sundlaug er í garðinum þar sem gestir geta notið sólarinnar. Á hótelinu er einnig líkamsrækt, falleg og rúmgóð verönd. 

AFÞREYING 

Kvöldskemmtun er á hótelinu.

VEITINGAR

Á Prince Park er veitingastaður með hlaðborð og bar/kaffitería með fallegri verönd. 

STAÐSETNING 

Prince Park er staðsett um 800 metra frá gamla bænum á Benidorm. Í næsta nágrenni eru veitingastaðir, kaffihús og barir. Um 15-20  mínútna gangur er niður á Levante ströndina. 

AÐBÚNAÐUR Á PRINCE PARK

Sólbaðsaðstaða 

Verönd 

Útisundlaug 

Veitingastaður 

Bar

Snarlbar 

Kvöldskemmtanir

Lifandi tónlist

Tvíbýli

Baðherbergi

Loftkæling 

Sjónvarp

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin. 
 
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

Upplýsingar

Calle Primavera, 3, 03501 Benidorm, Alicante, Alicante, Spánn

Kort