Benidorm

Milords Suites er 3ja stjörnu íbúðagisting sem er einstaklega vel staðsett í hjarta gamal bæjarins á Benidorm stutt frá Poniente ströndinni. Þessi íbúðargisting er ein af örfáum gistingum sem nær að sameina óviðjafnanlega stemmingu gamla bæjarins í Benidorm og það að vera nánast á ströndinni.  Sólbaðsaðstað er á efstu hæðinni. Að okkar mati eru Milord Suites góðar íbúðir sem sameina kosti 3ja stjörnu gistingar, nálægð við strönd og fjörugt mannlíf. Sjón er sögu ríkari og á vefsíðu Milords Suites (linkur hér að neðan) má sjá fleiri myndir af gististaðnum! Gestir þurfa að yfirgefa íbúðirnar kl. 10:00 á brottfarardag.

GISTING 

Íbúðirnar eru með einu svefnherbergi og sjávarsýn. Þær eru vel búnar með eldhúskrók og baðherbergi. Athugið að við komu greiðist 50 evru trygging fyrir íbúðinni. Tryggingarféð er svo endurgreitt við brottför miðað við að íbúðin sé í lagi. 

AÐSTAÐA 

Á efstu hæð er sólbaðsaðstaða sem er eingöngu fyrir gesti hótelsins. Auk þess er lítill líkamsræktarsalur á hótelinu(einungis nokkur tæki) til afnota fyrir gesti.

VEITINGAR 
Á jarðhæð er veitingastaður/kaffihús þar sem hægt er að fá fjölbreytta rétti allt frá kjarngóðum morgunverði til fjölbreyttra spænskra rétta. Svo er líka hægt að kaupa sér þar nýtt brauð og fara með upp í íbúð og spara þar með ferðina í bakaríið. 

STAÐSETNING 

Íbúðirnar eru staðsettar þar sem gamli bærinn byrjar Poniente megin á ströndinni, en rétt við ströndina. Þær eru því í göngufjarlægð frá öllum helstu veitingastöðum sem bærinn státar af og um leið innan við 50 metra frá Poniente ströndinni og smábátahöfninni.

AÐBÚNAÐUR Á MILORD SUIETES

Útisundlaug(árstíðarbundin)

Sólbaðsaðstaða 

Bar 

Veitingastaður/kaffihús 

Íbúðir með einu svefnherbergi 

Gæludýrahald (hámark 5kg) er leyft á hótelinu

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 

Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

Upplýsingar

Paseo de la carretera 52, Benidorm, Alicante, Spánn

Kort