Enska ströndin

Apartmentos Dorotea er vel staðsett 2ja stjörnu íbúðargisting, einungis 5-10 mínútur frá ströndinni. Einfaldar og snyrtilegar íbúðir með tveimur svefnherbergjum og fínn sundlaugargarður með upphitaðri sundlaug og sólbaðsaðstöðu.

GISTING 

Íbúðir með tveimur svefnherbergjum og fullbúnu eldhúsi. Í íbúðunum er einnig setustofa með svefnsófa, sjónvarpi og öryggishólfi (gegn gjaldi). Svalir eða verönd, með garðhúsgögnum, eru í öllum íbúðum.

AÐSTAÐA 

Í garðinum er upphituð sundlaug og sólbaðsaðstaða. Snarlbar er í garðinum og hægt að kaupa þar drykki, samlokur o.fl.

 

STAÐSETNING 

Hótelið er vel staðsett rétt hjá Ensku ströndinni í næsta nágrenni við bari og verslanir. 

AÐBÚNAÐUR Á APARTMENTOS DOROTEA 

Garður 

Útisundlaug 

Sólbaðsaðstaða 

Íbúðir með tveimur svefnherbergjum 

Baðherbergi

Eldhús 

Svalir/Verönd 

Snarlbar 

Stutt í strönd

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 

Upplýsingar

Avenida de Tirma, 5, 35100 Playa del Inglés - San Bartolomé de Tirajana, Gran Canaria,

Kort