Hotel Abora Continental, áður IFA Continental, er gott 3ja stjörnu hótel nálægt hjarta Ensku strandarinnar, stutt frá iðandi mannlífinu og ströndinni góðu. Í garðinum er góð sundlaug og í boði er skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna á kvöldin. Hótelið var gert upp árið 2018.
GISTING
Tvíbýlin eru snyrtileg og búin helstu þægindum; sjónvarpi, síma og fríu WI-FI. Herbergjunum fylgja svalir eða verönd. Baðherbergi með baðkari og loftkæling. Í deluxe tvíbýlunum er Nespresso kaffivél. Einnig eru fjölskylduherbergi sem eru innréttuð í skemmtilegum stíl.
AÐSTAÐA
Góður garður með tveimur sundlaugum og barnalaug sem og aðstöðu til sólbaða. Við sundlaugina geta gestir leigt handklæði gegn gjaldi. Þar er einnig að finna leikvöll fyrir börnin. Sérstakt internet svæði er á hótelinu með tölvum. Hárgreiðslustofa og nuddstofa eru á hótelinu fyrir þá sem vilja láta dekra við sig.
AFÞREYING
Á hótelinu eru kvöldskemmtanir fyrir alla fjölskylduna þar sem skemmtikraftar troða upp. Á hótelinu er einnig hjólaleiga, svo tilvalið er fyrir gesti að leigja hjól (gegn gjaldi) og kanna nærumhverfi hótelsins á hjóli.
VEITINGAR
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, þrir barir og þar af sundlaugabar og snarlbar.
FYRIR BÖRNIN
Í garðinum er leikvöllur og mini-klúbbur er fyrir hressa krakka. Mini-diskó er á kvöldin.
STAÐSETNING
Hótelið er mjög vel staðsett rétt við Ensku ströndina og stutt frá allri helstu þjónustu. Í nálægð er aragrúi veitingahúsa og kaffihúsa.
AÐBÚNAÐUR Á ABORA CONTINENTAL
Sólarhringsmóttaka
Internetsvæði
Leikvöllur
Útisundlaug
Barnalaug
Sólbaðsaðstaða
Leikherbergi
Handklæðaþjónusta
Hárgreiðslustofa
Nudd
Gufubað
Verslun
Hjólaleiga
ATH
Upplýsingar
Avenida de Italia, 2, E-35100, Playa del Inglés, Gran Canaria
Kort