Cordial Green Golf er gott 3ja stjörnu smáhýsahótel staðsett á Maspalomas ströndinni. Húsin eru 250 talsins og eru þau öll á tveimur hæðum. Í garðinum er sundlaug og sólbaðsaðstaða og við hlið hótelsins er golfvöllur Maspalomas.
GISTING
Litlu smáhýsin eru litrík og falleg sem gerir yfirbragð hótelsins enn skemmtilegra. Við bjóðum upp á smáhýsi með einu svefnherbergi. Þau eru einföld en búin öllum helstu þægindum til að gera dvölina sem notalegasta. Þar er að finna svefnherbergi, stofu með svefnsófa, sjónvarpi og fullbúnum eldhúskrók með örbylgjuofni og kaffivél. Á efri hæðinni er baðherbergi með sturtu. Smáhýsin eru ekki loftkæld en þar er að finna viftur. Frítt internet og lítil verönd fylgir öllum smáhýsum. Smáhýsin eru þrifin 5 sinnum í viku og skipt er um handklæði og rúmföt tvisvar í viku.
AÐSTAÐA
Í garðinum er góð sólbaðsaðstaða og tvær sundlaugar, þar af önnur sem er upphituð yfir vetrartímann. Á hótelinu er lítil verslun. Frítt, þráðlaust internet er á hótelinu. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.
AFÞREYING
Skemmtidagskrá er á hótelinu nokkrum sinnum í viku. Gestir geta spilað tennis eða Squash á hótelinu gegn gjaldi. Við hliðin á hótelinu er góður golfvöllur.
VEITINGAR
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður sem framreiðir morgun-, hádegis- og kvöldverð. Á hótelinu er einnig að finna sundlaugarbar.
FYRIR BÖRNIN
Sérstök barnalaug og leikvöllur eru fyrir yngri gestina. Smá-klúbbur er starfræktur mánudaga til föstudaga fyrir 4-12 ára krakka.
STAÐSETNING
Smáhýsin standa alveg við golfvöllinn á Maspolomas. El Tablero verslunarmiðstöðin er í 4 km fjarlægð frá Green Golf og Yumbo er örlítð nær. Ókeypis akstur er frá hótelinu á ströndina í Maspalomas og yfir á Ensku ströndina.
AÐBÚNAÐUR Á CORDIAL GREEN GOLF
Sólbaðsaðstaða
Sundlaug
Barnalaug
Garður
Skemmtidagskrá
Barnaklúbbur
Leikvöllur
Billjardborð
Stutt á golfvöll
Veitingastaður (hlaðborð)
Bar
Smáhýsi
Verönd
Eldhúskrókur
Kaffivél
Örbylgjuofn
Svefnsófi
Frítt internet
Upplýsingar
Avda. de Tjaereborg, s/n, 35100 Maspalomas, Gran Canaria
Kort