3ja stjörnu smáhýsi Biarritz er án efa eitt af þekktustu hótelunum á Ensku ströndinni. Staðsetningin er frábær, í hjarta Ensku strandarinnar, og stutt í allt. Verslunarmiðstöðvar eins og CITA, Yumbo og Sandía eru allar í um 5 mínútna göngufjarlægð og um 800 m eru á ströndina. Öll smáhýsi á Biarritz voru endurnýjuð 2018. Erfitt hefur verið að útvega smáhýsi á þessu hóteli þar sem gestir sem sækja það koma aftur og aftur. Nú hefur okkur þó tekist að útvega nokkut smáhýsi á þessu frábæra hóteli!
GISTING
Smáhýsin eru 76 og í þeim sem við bjóðum upp á eru eitt eða tvö svefnherbergi, eldhús og stofa. Í setustofu er svefnsófi, sjónvarp, sími og öryggishólf. Rúmgott baðherbergi með hárþurrku. Eldhúsið er mjög vel útbúið með örbylgjuofni, brauðrist og kaffivél. Hver íbúð er með góða verönd og gestir hafa sína eigin sólstóla til umráða. Athugið að ekki er loftræsting heldur eru viftur í stofu og svefnherbergjum.
AÐSTAÐA
Garðurinn er mjög stór og býður upp á fjölbreytta möguleika; mjög stóra og sérstaka sundlaug sem er upphituð á veturna og barnalaug tengda henni og frábæra sólbaðsaðstöðu þar sem sólstólar fást án endurgjalds. Barnaleikvöllur, minigolf og 3 flóðlýstir tennisvellir er bara lítill hluti af þeirri aðstöðu sem hótelið býður upp á. Á hótelinu er líkamsrækt sem gestir geta sótt þeim að kostnaðarlausu. Þvottaaðstað gegn gjaldi. Smáhýsin þrifin 5sinnum í viku ( létt þrif ), skipt á rúmum 2svar í viku og handklæðaskipti 3svar í viku
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaður sem framreiðir morgun-, hádegis- og kvöldverð í formi hlaðborðs. Kvöldmatur er stundum einnig í boði a la carte. Í boði er að kaupa smáhýsi með morgunverði eða hálfu fæði.
FYRIR BÖRNIN
Leiksvæði og barnalaug.
STAÐSETNING
Frábær staðsetning í hjarta Ensku strandarinnar og stutt er í alla þjónustu, verslunarmiðstöðvar og ströndina. Enska ströndin er þekkt fyrir fjörugt næturlíf og iðandi mannlíf en þar er að finna ótal veitingastaði, bari og verslanir. Frá hótelinu eru 50 m í strætóstoppistöð, 200 m í Yumbo verslunarmiðstöðina (sem er sérstaklega skemmtileg að næturlagi) og 800 m í ströndina.
AÐBÚNAÐUR Á BUNGALOWS CORDIAL BIARRITZ
Smáhýsi
Verönd
Eldhús
Eitt eða tvö svefnherbergi
Svefnsófi
Baðherbergi
Frítt internet
Sólbekkir
Útisundlaug
Leikvöllur
Tennisvöllur
Mini-golf
Bílastæði
Skemmtidagskrá
ATH
Upplýsingar
Avda. de Bon 18, 35100 Playa del Ingles, Gran Canaria,
Kort