San Agustin

Abora Interclub Atlantic Hótel er 3ja stjörnu hótel, staðsett uppi á hæð í bænum San Agustin ströndinni á suðurhluta Gran Canaria. Á hótelinu er barnaklúbbur og skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.

GISTING 

Herbergin eru snyrtileg tvíbýli með rúmi og svefnsófa. Þar er einnig að finna baðherbergi með baðkari, síma og sjónvarpi. Herbergjum fylgja svalir eða verönd búin garðhúsgögnum. Á hótelinu eru einnig svokölluð fjölskylduherbergi sem henta fjölskyldum á ferð og flugi. Fjölskylduherbergin eru stærri, með stofu og svefnaðstöðu (athugið ekki er um að ræða íbúð með svefnherbergi heldur er hér um að ræða eitt rými). Fjölskylduherbergjunum fylgja einnig svalir eða verönd með garðhúsgögnum. 

AÐSTAÐA 

Í garðinum er góð sólbaðsaðstaða með sólbekkjum ásamt sundlaug með rennibrautum sem ætti að kæta yngri gestina. Á hótelinu er einnig lítil verslun, tennisvöllur og heilsurækt. Gestir geta keypt aðgang að þráðlausu neti gegn gjaldi. Móttakan er opin allan sólarhringinn. 

AFÞREYING 

Á IFA Interclub Atlantic Hótel leiðist engum. Hér er í boði skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna.

VEITINGAR 

Á hótelinu er veitingastaðurinn El Jardin sem býður upp á fjölbreytt hlaðborð. Þar er einnig að finna sundlaugarbarina El Palmeral og El Cuarto ásamt börunum Tearto og Disco Pub Bora Bora þar sem mikið fjör er gjarnan á kvöldin. 

FYRIR BÖRNIN 

Á hótelinu er barnaklúbbur og sundlaugin er sérstaklega skemmtileg fyrir krakka. 

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett uppi á hæð á San Agustin ströndinni með fallegt útsýni yfir hafið í 10  mínútna fjarlægð með bíl á Ensku ströndina. 

AÐBÚNAÐUR Á ABORA INTERCLUB ATLANTIC HOTEL 

Útisundlaug 

Sólbaðsaðstaða 

Gróðursæll garður 

Rennibrautir 

Tvíbýli

Fjölskylduherbergi

Svefnsófi

Svalir/verönd

Baðherbergi

Baðkar 

Sjónvarp 

Sími 

Skemmtidagskrá 

Veitingastaður 

Sundlaugarbarir 

Barir 

Diskóbar 

Barnaklúbbur 

Sólarhringsmóttaka

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

 

Upplýsingar

Los Jazmines, 2 San Augustin Gran Canaria Espana

Kort