Hótel Riu Palace Oasis er fínt 5 stjörnu hótel með öllum helstu þægindum.
GISTING
Herbergin eru notaleg og bjóðum við ýmist upp á tvíbýli eða tvíbýli með hliðarsjávarsýn. Herbergin hafa loftkælingu, baðsloppa og inniskó, gervihnattasjónvarp, minibar (aukagjald), öryggishólf, frítt internet, síma, og ýmist svalir eða verönd.
Baðherbergin eru með baðkari eða sturtu, hárþurrku og hreinlætisvörur.
AÐSTAÐA
Í garðinum eru þrjár sundlaugar og leiksvæði fyrir börnin. Einnig er heitur pottur, svæði til að sóla sig, SPA, gufubað, líkamsrækt og heilsulind. Ef þú vilt fara á ströndina þá veitir hótelið þér einkaaðgang að ströndinni.
AFÞREYING
Hægt er að skella sér í ræktina eða slaka á í heilsulindinni. Á hótelinu er skemmtidagskrá á kvöldin.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu eru þrír veitingastaðir en í boði er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður sem er með spænska matargerð og sá þriðji sérhæfir sig í svokallaðri fusion matargerð. Einnig eru þrír barir á hótelinu og þar er hægt að fá sér snarl.
FYRIR BÖRNIN
Í sundlaugagarðinum er barnalaug þar sem þau yngri geta hoppað og skoppað og leikvöllur. Einnig er barnaklúbburinn LiuLands Kids' Club (gegn gjaldi). Þar er skjaldbakan Calú í aðalhlutverki, sem skemmtir krökkunum með leikjum og dönsum.
AÐBÚNAÐUR
Sundlaug
Nuttpottur
Garður
Verönd
Sólarverönd
Líkamsrækt
Barnalaug
Barnaleikvöllur
Veitingastaðir
Hlaðborðsveitingastaður
Bar
Sólarhringsmóttaka
Farangursgeymsla
Dagleg þrif
Upplýsingar
Plaza de las Palmeras 2, 35106 Maspalomas
Kort