Hótel Palm Beach er gott 4ra stjörnu hótel staðsett við enda Levante strandarinnar í hæðinni fyrir ofan bæinn á Benidorm.
GISTING
Herbergin eru fallega innréttuð og ágætlega rúmgóð. Þau snúa öll út í garð. Gott baðherbergi, sími, sjónvarp, minibar og svalir. Öll herbergi eru loftkæld.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er stór sundlaug, góður garður og leiksvæði fyrir börn. Veitingahús, bar, innisundlaug og líkamsræktaraðstaða. Fjölbreytt skemmtidagskrá yfir sumartímann.
STAÐSETNING
Fyrir þá sem eru kunnugir á svæðinu þá er hótelið staðsett inn í krikanum við endann á ströndinni. Gangur frá hótelinu að ströndinni er u.þ.b. 800 metrar en hótelið er með fría skutlu fyrir hótelgesti niður að strönd. Töluverð brekka er upp að hótelinu.
ANNAÐ
Sólbaðsaðstaða
Sundlaugar
Líkamsrækt
Leikvöllur
Veitingastaður
Bar
Internet
ATH
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar
Calle de Oslo, 2, 03503 Benidorm, Alicante, Spánn
Kort