Lloret de Mar

Hotel Anabel er gott 4 stjörnu hótel, staðsett í Lloret de Mar og steinsnar frá miðbænum með næturlífi, börum og verslunum og 5 mínútur frá strönd. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.

GISTING 

Herbergin eru snyrtileg með sjónvarpi og góðum baðherbergjum. Þau snúa annðhvort út í garð, að sundlauginni eða út að götu. Góð og falleg sameiginleg aðstaða.

AÐSTAÐA 

Garðurinn er með 2 sundlaugum, ein af þeim barnalaug. Sólbaðsaðstaða og bar í garðinum. Heilsulind.

AFÞREYING

Hótelið býður upp á daglega skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.

VEITINGASTAÐIR

Hótelið býður upp á fjölbreytt hlaðborð frá morgni til kvölds á veitingastað hótelsins.

FYRIR BÖRNIN 

Barnaklúbbur.

STAÐSETNING

Hótelið er vel staðsett rétt við miðbæ Lloret de mar, rétt ofan við bæinn.

AÐBÚNAÐUR 

Útisundlaug 

Sólbaðsaðstaða

Veitingastaður 

Hlaðborðsveitingastaður 

Barnalaug 

Heilsulind 

Skemmtidagskrá 

Loftkæling

Svalir/verönd

Öryggishólf (gegn gjaldi)

Baðherbergi

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
 
ATH:
Frá1 nóvember 2012 var settur sérstakur gistiskattur á allar hótelgistingar í Katalóníu. Farþegar þurfa að greiða þetta gjald beint til hótelsins. Enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.

Upplýsingar

C/ Felicia Serra, 10 17310 Lloret de Mar, Spain

Kort