Garda

Poiano Resort er glæsilegt 4 stjörnu hótel í bænum Garda við Gardavatnið. Hótelið er staðsett í hlíð, umkringt gróðri og fallegu landslagi.  2 sundlaugar, heilsulind og fjöldi  afþreyingu tryggir gestum góða dvöl.

 

Gisting:

Herbergin eru smekklega hönnuð og vel búin öllum helstu þægindum m.a. loftkælingu, sjónvarpi, síma og örrygishólfi, einnig hafa baðherbergin sturtu/baðkar og hárþurrku. Ókeypis wifi er á hótelinu öllu.

 

Aðstaða-Afþreying:

Á hótelinu eru 2 sundlaugar, heilsulind með aðgang að gufubaði, heitum potti og nuddi gegn gjaldi. Einnig er tennisvöllur, billiard borð og pílukast sem hægt er að njóta gegn gjaldi. Fyrir börnin er krakkaklúbbur, leikvöllur og leikherbergi.

Á kvöldin er boðið uppá skemmtidagskrá.

ATH vinsamlegast kynnið ykkur vel samgöngur til og frá Verona.  Ef þið eruð ekki á bíl þá er nauðsynlegt að athuga hvernig almenningssamgöngur milli Garda og Verona virka.

Veitingar:

Veitingastaður er á hótelinu og hefur ítalskar, miðjarðarhafs og evrópska rétti. Einnig er bar og snarlbar með léttum veitingum.

Staðsetning:

Poiano Garda Resort er staðsett á hlíð í Garda og er umkringd gróðri og fallegu útsýni. Veitingastaðir og barir eru í stuttu göngufæri frá hótelinu, Jungle Adventure Park er í 5 km fjarlægð, golfvöllur innan 3 km og 24 km i Verona flugvöll.

Aðbúnaður:

Sturta/baðkar

Sundlaugar

Örrygishólf

Heilsulind

Heitur pottur

Gufubað

Veitingastaður

Bar

Skemmtidagsrká

Loftkæling

Ókeypis wifi

Sjónvarp

Sími

Hárþurrka

Tennisvöllur

Krakkaklúbbur

Leikherbergi

Nudd

Upplýsingar

Via Poiano I-37016 Garda (Verona) Lago di Garda - ITALY

Kort