Costa Adeje

Hótel Suite Villa Maria er frábær 5 stjörnu hótelsamstæða staðsett í 500 metra fjarlægð frá La Caleta de Adeje ströndinni á suðvesturhluta Tenerife. Hótelið samanstendur af glæsilegum villum og í miðjum garðinum er garður með sundlaugum. Í boði eru villur með verönd með húsgögnum og útsýni yfir Atlantshafið og eyjuna La Gomera. 

GISTING 

Íboði eru Villur með 1 svefnherbergi en þær rúma tvo, Villur með 2 svefnherbergjum sem rúma fjóra. og Villur með 3 svefnherbergjum sem rúma sex manns. Allar villurnar er vel útbúnar með eldhúsi, ísskáp, örbylgjuofn, ofn, kaffivél og hraðsuðuketill. Tvö baðherbergi má finna í öllum villum, villunni fylgir verönd búin garðhúsgögnum með útsýni yfir hafið og fjöllin. Einnig er í boði villur með 3 svefnherbergjum og lítilli einka sundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu.

AÐSTAÐA

Í hótelgarðinum er að finna tvær sundlaugar og barnalaug. Sundlaugarnar eru upphitaðar yfir vetrarmánuðina. Sólbaðsaðstaðan er góð og hægt er að fá handklæði fyrir sundlaugina. Hægt er að láta dekra við sig í fríinu og á hótelinu má finna hárgreiðslustofu og líkamsræktarstöð. Móttakan er opin allan sólarhringinn. Bílastæði eru við hótelið sem gestir geta notað sér að kostnaðarlausu. 

AFÞREYING 

Líkamsrækt, mini-golf og leikjaherbergi. Einnig er leikvöllur og krakkaklúbbur fyrir hressa krakka.

VEITINGAR 

Á hótelinu er veitingastaðurinn „La Torre“ sem sérhæfir sig í alþjóðlegri matseld. Á sundlaugarbarnum er hægt að fá létt snarl á kvöldin, Bar Plaza  býður upp á drykki og kokteila.

FYRIR BÖRNIN 

Í garðinum er barnalaug og leikvöllur fyrir börnin. Á hótelinu er starfræktur krakkaklúbbur og fyrir krakka eldri en 12 ára er í boði leikjaherbergi.

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett á suðvestur hluta Tenerife rétt við frábæran golfvöll. 500 metrar eru niður á La Caleta de Adeje. Tenerife South-flugvöllurinn er í 25 mínútna akstursfjarlægð.

AÐBÚNAÐUR Á SUITE VILLA MARIA 

Útisundlaug 

Sólbaðsaðstaða

Barnalaug 

Minigolf 

Leikvöllur 

Krakkaklúbbur

Leikjaherbergi

Skvass 

Tennis 

Líkamsræktaraðstaða 

Hárgreiðslustofa

Bar

Veitingastaður 

Loftkæling 

Þráðlaust internet 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
 
Athugið: Efri sundlaug ásamt barnalaug verða lokaðar vegna viðhalds 17.apr - 17.maí 2023.
Aðalsundlaug verður opin.
 

Upplýsingar

Avda. Los Acantilados, s/n.38679 Costa Adeje, Santa Cruz de Tenerife

Kort