Grand Muthu Golf Plaza er gott 4ra stjörnu íbúðahótel staðsett í Golf de Sur, á suðurhluta Tenerife. Golf de Sur er lítill bær staðsettur á suðurhluta Tenerife, í um 10 mínútna akstri frá flugvellinum Reina Sofia. Stór og glæsilegur sundlaugagarður er við hótelið ásamt lítilli heilsulind. Hótelið hentar pörum jafnt sem fjölskyldufólki.
GISTING
Íbúðirnar eru með einu svefnherbergi og eru rúmgóðar og bjartar. Þær eru búnar öllum helstu þægindum til þess að gera dvöl gesta sem ánægjulegasta, ásamt því að vera nokkuð skemmtilega hannaðar. Þær eru loftkældar, með öryggishófli og sjónvarpi. Íbúðirnar snúa annað hvort út á götu eða út að sundlaug. Nokkrar íbúðir eru með sjávarsýn.
AÐSTAÐA
Við hótelið er fallegur sundlaugagarður með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu. Þar er einnig að finna litla heilsulind þar sem gestir geta sótt ýmsa þjónustu, farið í líkamsræktina eða svamlað um í sundlaug(gegn gjaldi). Á hótelinu er leikjaherbergi.
VEITINGAR
Á Grand Muthu Golf Plaza er veitingataður með hlaðborð. Hægt er að fá "allt innifalið" gegn gjaldi sé óskað eftir því.
FYRIR BÖRNIN
Í garðinum er leikvöllur.
STAÐSETNING
Grand Muthu Golf Plaza er staðsett í bænum Golf de Sur, á suðurhluta Tenerife.
Golf De Sur er rólegur, umkringdur tveim glæsilegum golfvöllum, Amarilla Golfvellinum og Golf del Sur Golfvellinum. Það er gott úrval af veitingastöðum og börum í næsta nágrenni og svo er að finna verlsunarkjarnann San Blas, sem er í 15 mínútna gangi frá hótelinu, sem hefur að geyma mikið af frábærum veitingastöðum. Strætisvagnar stoppa beint fyrir framan hótelið og tekur um 20 -30 mínútur að komast niður á Playa de las Americas svæðið.
Aðeins tekur um 10 mínútur að fara með leigubíl frá flugvellinum Reina Sofia og kostar bílinn um 15 evrur. Hótelið er einnig með góða samninga við báða golfvellina og geta séð um bókanir á rásartímum á sértilboði fyrir gesti hótelsins. Hótelið er um 500 metra frá sjónum og í um 15 mínútna gangi frá golfvöllunum Amarilla Golf og Golf del Sur. Athugið að ekki er sandströnd við bæinn. Næsti bær við Golf del Sur er Los Abrigos, sem er þekktur fyrir skemmtilegt svæði við höfnina og státar af einum af bestu veitingastöðum eyjunnar, en hægt er að ganga meðfram sjávarsíðunni út að þeim bæ.
AÐBÚNAÐUR Á GRAND MUTHU GOLF PLAZA
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Leikvöllur
Heilsulind
Líkamsrækt
Hamam
Gufubað
Loftkæling
Lyfta
Hárgreiðslustofa
Snyrtistofa
Leikjaherbergi
Nudd
Sjónvarp
Baðherbergi
Hárþurrka
Snarlbar
Upplýsingar
Kort