Aguamar er þriggja stjörnu hótel staðsett Í Los Cristianos. Í nágrenninu eru Los Cristianos ströndin, Golf Las Americas og Las Vistas ströndin. Góður sundlaugargarður með sólbaðsaðstöðu. Íbúðirnar eru vel útbúnar með öllum helstu þægindum og svölum.
GISTING
Íbúðirnar eru ágætlega búnar og eru með svölum eða verönd. Lítið eldhús með ísskáp, örbylgjuofni, brauðrist og tekatli. Hægt er að kaupa aðgang að þráðlausu interneti. Hægt er að leigja sjónvarp og öryggishólf gegn gjaldi.
AÐSTAÐA
Í garðinum er sundlaug og sólbaðsaðstaða ásamt ping pong borði og mini-golf velli. Lítið leiksvæði er fyrir börn. Lyfta er á hótelinu.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð sem framreiðir morgun-, hádegis- og kvöldverð. Á hótelinu er einnig snarlbar.
STAÐSETNING
Aguamar er staðsett sunnarlega á Tenerife, nálægt Los Cristianos ströndinni. Stutt er í veitingastaði, verslanir og helstu þjónustu.
AÐBÚNAÐUR Á AGUAMAR
Útisundlaug
Leikvöllur
Íbúðir
Svalir
Baðherbergi
Lítið eldhús
Hlaðborðsveitingastaður
Snarlbar
ATHUpplýsingar
Calle Albani, s/n, 38650 Los Cristianos, Tenerife
Kort