Hótel Lemon & Soul Las Palmas, áður hótel Atlanta er 3ja stjörnu hótel staðsett í höfuðborg Kanaríeyja Las Palmas. Hótelið var gert upp veturinn 2019. Hótelið er vel staðsett en það er aðeins 50 metrum frá Las Canteras ströndinni. Stutt er í allt það helsta frá hótelinu.
GISTING
Herbergin eru innréttuð í björtum stíl. Tvíbýlin rúma að hámarki 3 einstaklinga og eru þau einföld en þar er að finna öryggishólf, síma, baðherbergi og sjónvarp, ath. ekki eru svalir á tvíbýlum.
Eins eru í boði fjölskylduherbergi sem taka 2 fullorðna og 2 börn eða 3 fullorðna. Fjölskylduherbergin eru útbúin litlu eldhúsi með öllu því helsta s.s. ísskáp, ofn, örbylgjuofn og eldhúsáhöldum. Baðherbergið er með sturtu eða baðkari, litlar svalir. Hægt er að óska eftir superior herbergi, þau herbergi eru með svölum og litlu eldhúsi.
AÐSTAÐA
Á þaki hótelsins er sólarverönd með nuddpott og sturtu. Frábært útsýi á þakinu og er horft yfir Las Canteras, hafið og Las Palmas.
AFÞREYING
Hægt er að slaka á á þaki hótelsins en stutt er í alla helstu þjónustu sem Las Palmas býður upp á.
VEITINGASTAÐIR
Enginn veitingastaður né bar er á hótelinu en ekki þarf að leita langt út fyrir hótelið til að snæða góða máltíð eða drykk. Hægt er að fá sér morgunmat frá 7:00 - 10:30 í kaffiteríu sem er stutt frá hótelinu.
STAÐSETNING
Hótelið er í höfuðborginni Las Palmas, stutt er í alla þjónustu.
AÐBÚNAÐUR Á HÓTEL LEMON & SOUL LAS PALMAS
Sólarverönd
Nuddpottur
Handklæði (gegn auka gjaldi)
Sólarhringsmóttaka
Þvottaþjónusta (gegn auka gjaldi)
Öryggishólf (gegn auka gjaldi)
Hárþurrka (ekki í öllum herbergjum en hægt að fá í móttöku)
Strandhandklæði
Sjónvarpssetustofa
Frítt WI-FI
Upplýsingar
Calle Alfredo L. Jones, 37 35008 Las Palmas, Spánn
Kort