Playa de las Americas

Coral Ocean View er gott og nýlega uppgert 4 stjörnu hótel staðsett stutt frá Playa de las Americas. Heillandi hótel með góðu útsýni og velútbúnum svítum en er aðeins fyrir 16 ára og eldri.

GISTING 

Fallega innréttuð loftkæld herbergi og vel útbúin. Ýmist er hægt að velja um junior svítu eða svítu með sjávarsýn eða sundlaugarsýn en báðar eru þær útbúnar eldhúsi með öllu til alls, m.a. ískáp, örbylgjuofni, ristavél, kaffivél og tekatli. Baðherbergin eru stílhrein og flott með rúmgóðri sturtu.

AÐSTAÐA 

Notalegur sundlaugargarður með sólbekkjum og sólhlífum þar sem hægt er að njóta sólarinnar. Á efstu hæð hótelsins er verönd með heitum potti og sólbaðsaðstöðu. Á hótelinu er sundlaugarbar, bar, góð líkamsrækt, svæði til að slaka á, garður, þvottavélar, þráðlaust internet og 24 tíma móttaka.  Heiti potturinn /Jacuzzi á roof terrace er lokaður til 31.ágúst 2022 

AFÞREYING

Líkamsrækt

VEITINGASTAÐUR 

Veitingastaður með hlaðborði.

FYRIR BÖRNIN 

Hótelið er eingöngu fyrir 16 ára og eldri.

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett í hlíð á milli Playa de las Americas og Costa Adeje og tekur um 10 min að labba niður á Troya ströndina.

AÐBÚNAÐUR

Útisundlaug 

Nuddpottur 

Sólbaðsaðstaða

Sólarhringsmóttaka 

Töskugeymsla 

Frítt internet 

Líkamsræktaraðstaða

Veitingasstaður 

 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 

Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 

Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.

Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

Ath. Þetta er reyklaust hótel frá og með 16.apr 2023.

Upplýsingar

Av. de los Pueblos, 38660 Playa de la Américas

Kort