Lido

Hotel Porto Mare er gott 4 stjörnu hótel staðsett við strandlengjuna á hinum vinsæla ferðamannastað Lido . Staðsetning hótelsins tryggir flestum herbergjum frábært útsýni yfir sjóinn og hótelgarðinn.

GISTING

Í boði vel útbúin loftkæld tvíbýli með sjávarsýn. Þar er m.a. að finna svalir eða verönd með húsgöngum, sjónvarp, baðherbergi með baðkari og hárþurrku.

AÐSTAÐA

Á hótelinu er mjög fín aðstaða, stór garður með þremur útisundlaugum, þar af einni barnasundlaug (ekki upphituð), ásamt góðri sólbaðsaðstöðu. Á hótelinu er einnig nnisundlaug og aðra  sundlaug inni og úti. Á hótelinu er heilsulind þar sem gestir geta notið ýmissa meðferða og farið í saunu, heitan pott og gufubað gegn gjaldi. 

AFÞREYING

Á hótelinu og í garðinum er að finna líkamsræktarstöð, tennisvöll, skvassvöll, borðtennis, snókerherbergi, mini-golf og fleira gegn gjaldi. Einnig býður hótelið upp á að aðstoða gesti við afþreyingarplan s.s. köfun og hreyfingu.

VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu er að finna 5 veitingastaði og 4 bari:

Il Basilico Restaurant: ítalskur veitingastaður sem býður upp á hádegismat, tapas og kvöldmat.
Alfama Restaurant: Veitingastaður með portúgalska matargerð
Varanda: Býður upp á léttar veitingar
Med Restaurant: Veitingastaður með matargerð innblásinni frá Miðjarðarhafinu.
Atlantida Restaurant: Býður upp á fjölbreytt úrval af alþjóðlegri matargerð. Á hverju kvöldi er ákveðið þema.


Portofino Bar: Bar með Happy Hour og lifandi tónlist öll kvöld. 
Oceano Bar: Bar með lifandi tónlist. Hér gefst einnig tækifæri til að horfa á fótboltaleik ef áhugi er á því.
Lido Bar: Bar sem er opinn við sérstök tilefni (hægt að fá nánari upplýsingar í hótelmóttöku)
Alma Di Vino: Vínbar sem býður upp á yfir 100 tegundir af vínum.

Doce-Lima: Staður við sundlaugina sem býður upp á gott kaffi, ís og fjölbreytt úrval af crepes. 

FYRIR BÖRNIN

Á hótelinu er barnasundlaug (ekki upphituð) og leikvöllur.

STAÐSETNING

Hótelið er staðsett í um 5 km frá miðbæ Funchal og í um 19 km fjarlægð frá flugvellinum.

AÐBÚNAÐUR Á HOTEL PORTO MARE

5 Veitingastaðir

4 Barir

5 sundlaugar 

SPA (gegn gjaldi)

Nudd- og fegurðarmeðferðir (gegn gjaldi)

Sauna (gegn gjaldi)

Gufubað (gegn gjaldi)

Heitir Pottar

Líkamsræktarstöð

Þolfimisherbergi

Mini-golf

Borðtennis

Tennisvöllur

Skvassvöllur 

Snókerherbergi

Barnaleikvöllur

Wi-fi 

Skemmtidagskrá

Frí bílastæði

Frír strætó frá hótelinu til Funchal og til baka

Barnaskemmtun á sumrin

Þvottaaðstaða (gegn gjaldi)

 

 

Upplýsingar

R. Simplício dos Passos Gouveia 21, 9004-565 Funchal, Illha da Madeira - Portúgal

Kort