Hótel Alegria Plaza Paris er gott 4 stjörnu hótel staðsett í Lloret de Mar. Flott sólbaðsaðstaða með sundlaug og heilsulind. Tilvalið hótel til þess að slaka á í fríinu. Gestir geta valið um morgunverð, hálft fæði, fullt fæði og allt innifalið. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
GISTING
Tvíbýli með eða án sundlaugarsýn, baðherbergi með sturtu, loftkælingu, litlum ísskáp, síma, hárþurrku, sjónvarpi og völum. Hægt er að óska eftir fjölskylduherbergi en þau eru stærri en tvíbýlin, þar er baðherbergi með sturtu, loftkæling, lítill ísskápur, sími, hárþurrka, sjónvarp og svalir. Wifi er á öllum herbergjum.
AÐSTAÐA
Fallegur garður með sundlaug, heitum potti og sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt og heilsulind er einnig að finna á hótelinu fyrir gesti.
AFÞREYING
Líkamsrækt og heilsulind er að finna á hótelinu fyrir gesti. Gestir geta bókað tíma í ýmsar meðferðir í heilsulindinni.
VEITINGASTAÐIR
Hlaðborðsveitingastaður þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Gestir geta valið um morgunverð, hálft fæði, fullt fæði eða allt innifalið.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett um 800 metrum frá ströndinni í Lloret de Mar. Um klukkustund og 15 min tekur að keyra frá flugvellinum í Barcelona og á hótelið.
AÐBÚNAÐUR Á ALEGRIA PLAZA PARIS
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Hlaðborðsveitingastaður
Morgunverður / hálft fæði / fullt fæði / allt innifalið
Loftkæling
Sturta
Hárþurrka
Sjónvarp
Sími
Svalir
Öryggishólf (gegn gjaldi)
Baðherbergi
Ískápur
Wifi
Gestamóttaka 24/7
ATH
Upplýsingar
Plaça París, 5. Lloret de Mar (Girona) 17310
Kort