Tossa de Mar

GHT Sa Riere er nýtt 4 stjörnu hótel í Tossa de Mar. Góð staðsetning í miðbænum nálægt búðum og ströndinni. Gestir geta valið um morgunverð, hálft fæði eða fullt fæði. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.

GISTING 

Tvíbýli með svölum, baðherbergi með sturtu eða baði, hárþurrku, sjónvarpi, loftkælingu, síma, öryggishólfi og ísskáp (bæði gegn gjaldi).

AÐSTAÐA 

Ágætis sólbaðsaðstaða í garðinum með sundlaug og barnalaug. Einnig er lítil sundlaug með nuddi sem hægt er að slaka á í. Á hótelinu er einnig nuddþjónusta sem gestir geta nýtt sér.

AFÞREYING

Sundlaugagarður með tveimur sundlaugum, einni fyrir börn og svo er minni sundlaug með nuddi í. Á hótelinu er einnig nuddþjónusta sem gestir geta nýtt sér.

VEITINGASTAÐIR

Hlaðborðsveitingastaður þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Gestir geta valið um morgunverð, hálft fæði eða fullt fæði

FYRIR BÖRNIN 

Í garðinum er sundlaug fyrir börnin.

STAÐSETNING

Hótelið er vel staðsett um 600 metrum frá ströndinni í Tossa de Mar. Um klukkustund og 25 min tekur að keyra frá flugvellinum í Barcelona og á hótelið.

AÐBÚNAÐUR Á GHT SA RIERA

Útisundlaugar

Barnalaug

Sólbaðsaðstaða

Hlaðborðsveitingastaður 

Morgunverður / Hálft fæði / Fullt fæði

Loftkæling

Bað/sturta

Hárþurrka

Sjónvarp

Sími

Svalir eða verönd

Öryggishólf (gegn gjaldi)

Baðherbergi

Ískápur (gegn gjaldi)

Gestamóttaka 24/7

ATH 

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 

Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 

Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

ATH: Sérstakur gistiskattur er á allar hótelgistingar í Katalóníu. Farþegar þurfa að greiða þetta gjald beint til hótelsins við komu. Enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.

 

Upplýsingar

Passatge de la Rambla Pau Casals, s/n 17320, Tossa de Mar

Kort