Playa de las Americas

Hótel Andorra er gott 3ja stjörnu íbúðahótel vel staðsett á Playa de Las Amerícas, á suðurhluta Tenerife. Tvær útisundlaugar eru á hótelinu, þar af önnur upphituð á veturna og góð sólbaðsaðstaða. Las Vistas Beach er í 500 metra fjarlægð frá hótelinu.

 

GISTING 

Íbúðir með einu svefnherbergi, fallegar og rúmgóðar, með svölum, síma, sjónvarp/flatskjár, öryggishólf ( aukagjald) og eldhús með kæliskáp, eldunarhellu, örbylgjuofn og borðbúnað.  Baðherbergi með baðkar eða sturtu, hreinlætisvörur og hárþurrku. Standard íbúðir eru í hliðarbyggingu (ekki lyfta og ekki loftkæling, heldur vifta í lofti)  Superior íbúðir (hægt að óska eftir þeim - aukagjald, loftkæling í Superior íbúðum) eru í aðalbyggingu og þar eru lyftur.

 

AÐSTAÐA 

Í garðinum eru tvær sundlaugar, þar af önnur sem er upphituð yfir vetrartímann. Önnur sundlaugin er búin afmörkuðu svæði sem hentar börnum. Í garðinum er einnig að finna góða sólbaðsaðstöðu og snarlbar.  Lyfta er á hótelinu.

 

VEITINGAR 

Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð og al la carte. Setustofa með bar og snarlbar við sundlaugina. 

 

STAÐSETNING 

Hótel Andorra er staðsett á Playa de las Amerícas ströndinni á suður hluta Tenerife. Stutt er í alla helstu þjónustu, veitingastaði og verslanir. Um 500 metrar eru niður á strönd. 

 

AÐBÚNAÐUR Á HOTEL ANDORRA

Íbúðir

Eldunaraðstaða

Svalir 

Baðherbergi 

Hárþurrka 

Frítt þráðlaust internet 

Sími 

Sjónvarp

Skápur 

Ísskápur 

Ketill 

Örbylgjuofn

Brauðrist

Baðkar 

Útisundlaugar 

Sólbaðsaðstaða

Sundlaugabar 

Snarlbar 

Veitingastaður 

Billjardborð

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

Upplýsingar

Av. Antonio Dominguez, 10 - 38660 - Arona - Santa Cruz de Tenerife

Kort